Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Um Umferðarstofu

Fræða skal farþega um reglur varðandi notkun öryggisbelta

föstudagur 26. mars 2010 kl. 16:13

Hópbifreiðar sem eru skráðar í fyrsta sinn 1. október 2001 eða síðar eiga að vera búnar bílbeltum.  Í umferðarlögum segir að séu öryggisbelti í sæti bíls ber þeim sem í sætinu situr að nota þau.  Samkvæmt lagabókstafnum ber ökumaður ábyrgð á því að farþegar yngir en 15 ára noti öryggisbelti.  Lögð er jafnframt rík áhersla á að ökumaður hvetji farþega til að nota öryggisbelti og kynni notkun þeirra sé þess kostur.

Það eru belti í mörgum eldri rútum, en hafa þarf í huga að í þeim tilfellum þarf hönnun yfirbyggingar að vera nógu góð og sterk til að þola það margra tonna álag sem getur orðið við árekstur vegna þyngdar farþega.  Ekki alls fyrir löngu lenti rúta í hörðum árekstri.  Að mati eiganda hennar var hún alls ekki nógu örugg þegar hún var keypt og gjörbreytti hann farþegarýminu til að gera það öruggara. Hann skipti út gömlum stólum og öryggisbeltum sem hann taldi ekki hafa nægjanlegan styrk. Var það mat hans að sú fjárfesting hefði margborgað sig og líklega komið í veg fyrir að fólkið í bílnum stórslasaðist.

Kynningarefni fyrir farþega

Eins og fram hefur komið hvílir mikil ábyrgð á bílstjóra hópferðarbílsins að sjá til þess að farþegar noti öryggisbeltin. Umferðarstofa hefur útbúið CD diska sem inniheldur tilkynningu á fimm tungumálum um það að farþegar eigi að nota öryggisbeltin. Bílstjórinn getur spilað diskinn í upphafi hverjar ferðar. Diskinn er hægt að fá með því að hringja í síma 580-2000 eða senda tölvupóst á fraedsla@us.is.

Fyrir liggur að bílbelti eru einn mikilvægasti öryggisbúnaður í bílum.  Ekki er ólíklegt að notkun þeirra komi í veg fyrir að fjöldi fólks komist hjá að slasast alvarlega í umferðaróhappi.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++