Um Umferðarstofu
Er fyllsta öryggis gætt við akstur með fatlaða?
föstudagur 26. mars 2010 kl. 07:30
Jón Eiríksson hefur undanfarna tvo áratugi starfað að því að auka öryggi fatlaðra í bílum. Í áratug var starfsvettvangur hans Hjálpartækjamiðstöðin, en undanfarin tíu ár hefur hann starfrækt sitt eigið fyrirtæki sem annast ísetningu nauðsynlegs búnaðar til að tryggja öryggi fatlaðra í bílum. Í ársbyrjun 2010 sameinaði hann fyrirtækið rekstri Öryggismiðstöðvar Íslands. Hann hefur fylgst mjög vel með þróun þessara mála varðandi öryggisbúnað fatlaðra og þær reglur sem gilda um slíkan búnað.
Nú er skylt að vera með þriggja punkta belti
Jón sagði í viðtali við Tillit að mikil breyting hafi átt sér stað á þeim árum sem hann hefur starfað á þessum vettvangi. Í byrjun voru allar festingar fyrir til dæmis hjólastóla mjög frumstæðar, en á því hefði orðið gjörbylting. Nú er t.d. gerð krafa um að farþeginn sé í þriggja punkta öryggisbelti sem fest er við bílinn. Aðspurður um hvernig ástandið í þessum málefnum fatlaðara væri háttað sagði hann að það gera þyrfti betur til að það verði eins gott og æskilegt getur talist.
Jón segir að tvö atriði hafi áhrif á gæði og öryggi þeirrar þjónustu sem veitt er. Í fyrsta lagi er það krafa þeirra sem kaupa þjónustuna, um að gjaldið sé sem lægst og þar af leiðandi setji þeir ekki fram nógu afgerandi kröfur um þjónustu og öryggi bílanna.

Hjólastólarnir þurfa einnig að vera í lagi
Í öðru lagi segir Jón að mikil brögð sé að því að hjólastólar uppfylli ekki þá staðla sem gilda um akstur með þá. Allir hjólastólar sem ætlaðir eru til flutnings í bíl verða að hafa undirgengist prófun og uppfylla staðal ISO 7176/19. Því miður vanti mikið upp á að þeir séu allir nógu góðir og öruggir til notkunar í ferðaþjónustubíl. Fyrir bragðið eru bílstjórar oft í slæmri stöðu, því að þeir vilja ógjarnan neita að flytja fatlað fólk. Það eigi jafnvel við þó að það geti í raun verið hættulegt. Oft vantar belti í hjólastólana þótt slíkt belti komi þó ekki í staðinn fyrir þriggja punkta belti sem skylt er að nota og þarf að vera fest í bílinn.
Jón segir að reglugerðir um þetta efni séu í góðu lagi, hins vegar vanti stundum á að menn fari eftir reglunum. Til dæmis er notkun öryggisbelta langt frá því að vera fullnægjandi. Í raun þurfi bæði að vera belti sem festast við bílinn og einnig við hjólastólinn. Það er ástæða til að hvetja alla til að kynna sér reglugerðina og fylgja henni í hvívetna.

Hér er sýnt hvernig þriggja punkta bílbelti sem er fast í bílnum er sett yfir farþegann sem situr í hjólastól.
Skortur á notkun bílbelta helsta orsök slysa
Orsakir þeirra slysa sem eiga sér stað telur Jón fyrst og fremst vera skort á beltanotkun. Jón segir að forráðamenn fatlaðra og þeir sjálfir vilja oft ekki kæra þegar slys verða, vegna þess að það bitnar á bílstjórunum, sem bera gríðarlega mikla ábyrgð þegar slys á sér stað.
Framleiðendur leita allra leiða til að þróa búnað sem gerir akstur með fatlaðan eins öruggan og kostur er. Má þar meðal annars nefna bakstuðning, sem minnkar líkur á að fólk fái hálshnykk, t.d. við aftanákeyrslu.
Þeir aðilar sem sjá um akstur með fatlaða og þeir sem nota þá þjónustu eru hvattir til að gera athugun á því hvort farið sé að settum reglum. Hafa skal í huga að reglurnar þjóna þeim tilgangi að auka öryggi farþega. Ef vafi leikur á að tiltekið ökutæki uppfylli skilyrði fyrir akstur með fatlaða er hægt að leita til skoðunarstöðva.
Hvað segir reglugerðin?
Um öryggisbúnað fatlaðra og notkun hans gilda reglur sem sjá má í reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004 en þar segir m.a.:
24.208 Bifreið til að flytja hreyfihamlaða. (úrdráttur úr reglugerð um gerð og búnað ökutækja).
- Bifreið sem búin er til flutnings á hreyfihömluðum skal búin a.m.k. þriggja festu öryggisbeltum eða öðrum öryggisbúnaði sem hæfir flutningi hins hreyfihamlaða.
- Bifreið sem búin er til flutnings á hreyfihömluðum í hjólastólum skal búin a.m.k. þriggja festu öryggisbeltum eða öðrum öryggisbúnaði sem hæfir flutningi hins hreyfihamlaða. Öryggisbeltin skulu fest við yfirbyggingu bifreiðarinnar eða með festingum tengdum yfirbyggingu. Neðri festing öryggisbeltanna skal vera eins og skástrikaða svæðið sem sýnt er á mynd (hér að neðan).
- Ef bifreið er útbúin fyrir sérstakan hjólastól skulu festingar vera samkvæmt lið (2) eftir því sem við á.




