Um Umferðarstofu
Ratleikur til að efla færni í umferð- inni, þrek og þol
fimmtudagur 25. mars 2010 kl. 17:51
Í mars mánuði stóð Umferðarstofa fyrir ratleik meðal barna í þriðja bekk í Norðlingaskóla. Þessi leikur hefur verið notaður í útikennslu í Norðlingaskóla en fræðslufulltrúi Umferðarstofu samdi sérstakar umferðarspurningar við leikinn. Um er að ræða 50 spurningar en það lið sem fyrst nær upp í töluna 50 sigrar. Leikurinn kom vel út og virtust börnin skemmta sér konunglega við að leysa þrautirnar sem meðal annars höfðu þann tilgang að efla vitund þeirra fyrir þeim reglum sem gilda í umferðinni.
Ætlunin er að þróa þennan leik enn frekar en stefnt er að því að hann verði tilbúinn í vor til notkunar fyrir sumarstarf barna á vegum ÍTR, Íþrótta og tómastundaráð Reykjavíkurborgar. Ef árangurinn af þessu verkefni verður eins og vonir standa til má ætla að börnum utan Reykjavíkur standi slíkur leikur einnig til boða. Markmiðið með þessum umferðarratleik er að börnin kynnist helstu umferðarmerkjum og styrki kunnáttu sína í umferðarreglum sem snúa að þeirra aldri. Auk þess fá börnin notið góðrar útiveru og hreyfingar sem eykur þrek þeirra og þol.




