Um Umferðarstofu
"Notaðu bílbeltin - alltaf" vinnur til tveggja verðlauna
fimmtudagur 25. mars 2010 kl. 16:02

Auglýsingaherferðin "Notaðu bílbeltin - alltaf", sem Umferðarstofa og VÍS létu framleiða á síðasta ári, vann íslensku auglýsingaverðlaunin 2009 eða svonefndan Lúður í flokki vefborða á íslensku auglýsingahátíðinni 5. mars sl. Það er ÍMARK, félag íslensks markaðsfólks og einstaklinga sem hafa áhuga á og/eða starfa við markaðsmál, sem veitti verðlaunin. Vefborði auglýsingarinnar vann einnig svonefnt FÍT Gull en Félag íslenskra teiknara veitir þau verðlaun. Félag íslenskra teiknara, FÍT, er félagsskapur grafískra hönnuða og myndskreyta á Íslandi.
Gerðar voru 3 sjónvarpsútgáfur af auglýsingunni ásamt útvarpsauglýsingum, umhverfisgrafík og vefborða. Auglýsingarnar voru gerðar af auglýsingastofunni Hvíta húsið en herferðin var einnig tilnefnd í flokkunum Almannaheillaauglýsingar og Umhverfisgrafík.
Auglýsingin "Sá sem flöskustúturinn lendir á" sem Fíton gerði fyrir Umferðarstofu og Vínbúðina var einnig tilnefnd í flokki Vefborða.
Hér má sjá úrslit í Lúðrinum 2009.




