Um Umferðarstofu
"Svo kom það fyrir mig" námsefni fyrir framhaldsskólana
þriðjudagur 23. mars 2010 kl. 15:24
Námsefninu er ætlað að auðvelda kennurum í lífsleikni í framhaldsskólum að uppfylla markmið aðalnámskrár þar sem m.a. er kveðið á um í lokamarkmiði að nemandi verði fær um að taka ábyrgð á eigin lífi.
Ungt fólk, sem nýlega hefur tekið bílpróf, stendur oft á tíðum frammi fyrir freistingum sem m.a. felast í því að aka eftir neyslu vímuefn eða að ekið sé of hratt. Afleiðingar slíkra ákvarðana geta verið skelfilegar. Ofmat á eigin hæfni og trú á eigin ódauðleika virðast fylgja mörgum okkar, sérstaklega á unga aldri. Samkvæmt tölum slysaskráningar Umferðarstofu eru yngstu ökumennirnir í mestri hættu. Sú hætta grundvallast stundum af reynsluleysi en hegðun þessa aldurshóps hefur oft á tíðum yfir sér blæ barnaleikja. Á árunum 1999 til 2009 létust 36 einstaklingar á aldrinum 16-20 ára í umferðinni og þá eru ótalin öll þau fjöldamörgu slys þar sem fólk á þessum aldri slasast alvarlega og örkumlast. Umferðarstofa vill með þessu námsefni leggja sitt að mörkum svo fræða megi framhaldsskólanema um afleiðingar umferðarslysa.

Tilurð námsefnisins
Þegar Umferðarstofa ákvað að leggjast í þá vinnu að framleiða námsefni í umferðarfræðslu fyrir framhaldsskóla var ákveðið að leita til framhaldsskólanema og kanna hvað það var sem þeir teldu að kæmi sér vel í slíkri kennslu. Rætt var við u.þ.b. 120 ungmenni á aldrinum 16-21 árs. Menntaskólinn við Sund og Borgarholtsskóli voru heimsóttir en auk þess komu nokkur ungmenni í heimsókn til Umferðarstofu og tóku þátt í rýnihóp. Unga fólkið í rýnihópnum taldi að áhrifaríkt væri að heyra sögur fólks; fólks sem hefði lent í umferðarslysum. Hvernig er t.d. lífið eftir slys? Hvernig líður aðstandendum og ökumanninum sem varð valdur að slysinu?
Í framhaldi af því var hafist handa við að finna slys til umfjöllunar og viðmælendur til að ræða við. Umferðarstofa vill þakka öllu því fólki sem var tilbúið að ræða við okkur um reynslu sína.

Uppbygging námsefnisins
Námsefnið samanstendur af mynddiskum og verkefnum sem samin hafa verið í tengslum við myndefnið. Verkefnin byggjast upp á tveimur hópvinnuverkefnum og einu einstaklingsverkefni. Þegar nemendur hafi lokið við að leysa verkefnin er viðeigandi myndefni sýnt. Eftir sýningu efnisins fara fram umræður.
Áður en nemendurnir fá að sjá umfjallanir um raunveruleg umferðarslys eru þeir látnir setja sjálfa sig í ákveðin hlutverk m.a. með hjálp "klípusögu" en í sögunni er sett upp atburðarrás sem er undanfari alvarlegs umferðarslyss. Nemendurnir vita ekki hvernig raunverulega sagan endar þegar þau eru látin ímynda sér framvindu sögunnar og setja sína eigin persónu inn í hana. Síðan er þeim sýnd umfjöllun sem sýnir hvernig sagan endaði í raunveruleikanum. Munurinn á sögu nemendanna og hinni raunverulegu sögu er mikill og í ljós koma oft miklar ranghugmyndir sem nemendurnir hafa um afleiðingar tiltekinnar áhættuhegðun.
Kynningarherferð
Þessa dagana stendur Umferðarstofa fyrir kynningarherferð sem felst í því að framhaldsskólar eru heimsóttir og námsefnið kynnt. Kynning er í höndum fræðslufulltrúa Umferðarstofu. Eru forsvarsmenn framhaldskóla hvattir til að kynna sér þetta námsefni og hafa samband við Þóru Magnea Magnúsdóttur, fræðslufulltrúa, í síma 580 2023 eða með því að senda tölvupóst á thoram@us.is. Námsefnið Svo kom það fyrir mig stendur framhaldsskólum til boða, þeim að kostnaðarlausu.
Umferðarstofa vill þakka öllu því fólki sem var tilbúið að ræða við okkur um reynslu sína.




