Um Umferðarstofu
Nýmæli um skoðun ökutækja
föstudagur 1. maí 2009 kl. 00:00
Nú gætir þeirrar nýbreytni að tjaldvagnar, hjólhýsi og fellihýsi eru skoðunarskyld, samkvæmt reglugerð nr. 8/2009 um skoðun ökutækja. Eigendum þeirra er skylt að færa þau til skoðunar fyrir 1. ágúst á tilgreindu skoðunarári.
Tjaldvagnar og hljóhýsi (fellihýsi) skráð:
- 2009 skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2013, síðan á tveggja ára fresti;
- 2008 skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2012, síðan á tveggja ára fresti;
- 2007 skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2011, síðan á tveggja ára fresti;
- 2006 skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2010, síðan á tveggja ára fresti;
- 2005 og fyrr skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2009, síðan á tveggja ára fresti.
Almennt gildir sú regla að færa skal ökutæki til skoðunar í þeim mánuði sem síðasti tölustafur í skráningarnúmeri segir til um. Eins og að framan er greint gilda aðrar reglur um tjaldvagna, hjólhýsi og fellihýsi, en einnig eru frávik frá meginreglunni þegar kemur að skoðun ökutækja með einkanúmer, bifhjóla, fornbifreiða og húsbifreiða. Sjá nánar hér.



