Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Um Umferðarstofu

Skráningar ökutækja

þriðjudagur 12. maí 2009 kl. 08:44

Þegar skoðaður er fjöldi nýskráninga ökutækja fyrstu 145 daga ársins 2009 og sá fjöldi borin saman við eldri nýskráningar kemur í ljós að enn er fjöldi nýskráninga á árinu 2009 í sögulegu lágmarki.

Umferðarstofa hefur tekið saman yfirlit yfir nýskráningar ökutækja og eigendaskipti á tímabilinu frá 1. janúar 2009 til 15. maí 2009. Hafa skal í huga að hér er um að ræða nýskráningu og eigendaskipti allra skráningarskyldra ökutækja, ekki bara bifreiða.

Ljóst er að nýskráningar ökutækja á tímabilinu eru samtals 1313 en á sama tímabili í fyrra voru 8817 ökutæki nýskráð hér á landi. Þetta er 85,1% fækkun nýskráninga milli ára.

Ekki hefur dregið jafn mikið úr fjölda eigendaskipta á ökutækjum á árinu líkt og fjölda nýskráninga. Á fyrstu 135 dögum ársins voru skráð 26.662 eigendaskipti en árið 2008 voru þau 34.021 eftir jafn marga skráningardaga. Hlutfallsleg fækkun eigendaskipta nemur því 21,6% á því tímabili.

Hér má lesa fréttabréf Umferðarstofu sem inniheldur nánari upplýsingar.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++