Um Umferðarstofu
Veltibíll
föstudagur 1. maí 2009 kl. 00:00
Samningur hefur verið undirritaður um að Volkswagen verksmiðjurnar í Þýskalandi gefi tvo nýja veltibíla til Íslands. Annar bíllinn verður sameign Umferðarstofu, Sjóvá, Brautarinnar/BFÖ og Forvarnahúss, en hinn verður í eigu Forvarnahússins. Þetta er fjórði veltibíllinn sem gefinn hefur verið hingað til lands, en talið er að um 60 þúsund manns hafi prófað núverandi bíl, sem gefinn var árið 2005.
Gjöfin var afhent í tilefni af kynningu á nýrri tegund Volkswagen Golf bíla, sem bjóða upp á margvíslegan nýjan öryggisbúnað, þar á meðal til að láta ökumann vita ef farþegar í aftursæti eru ekki með beltin spennt. Tilgangur þessa verkefnis er að gera fólki grein fyrir hversu miklu máli bílbeltin skipta varðandi öryggi ökumanna og farþega bíla. 4 af þeim 11 sem létu lífið í bílum árið 2008 voru ekki í bílbeltum. Ljóst er að þeir örfáu sem ekki nota bílbelti eru í margfalt sinnum meiri lífshættu en þeir sem nota belti.



