Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Um Umferðarstofu

Nýtt námsefni í umferðarfræðslu fyrir leikskóla

föstudagur 1. maí 2009 kl. 00:00

Árið 2008 var ákveðið að ráðast í gerð nýs námsefnis í umferðarfræðslu fyrir leikskóla. Námsefnið tekur mið af þeim umferðarreglum sem leikskólabörn þurfa að kunna. Þar sem námsefni Bréfaskólans um innipúkann og krakkana í Kátugötu er mjög vinsælt var ákveðið að halda áfram að fjalla um þær persónur í leikskólabókunum.

Um er að ræða tvær flettibækur. Fyrri flettibókin heitir Innipúkinn fer í gönguferð og sú síðari Innipúkinn fer í strætó. Til viðbótar við þessar flettibækur fá leikskólarnir brúðu af innipúkanum og kennsluleiðbeiningar. Brúðuna geta leikskólakennarar notað til þess að spjalla við krakkanna um umferðina. Fyrri bókin og brúðan verða tilbúin í apríl en áætlað er að síðari bókin komi út sumarið 2009.

Námsefnið stendur öllum leikskólum til boða endurgjaldslaust en því verður dreift í leikskóla í apríl og maí. Allar nánari upplýsingar um efnið má fá hjá fræðslufulltrúum Umferðarstofu í síma 580 2000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið fraedsla-hjá-us.is.



Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++