Um Umferðarstofu
Tillit - fréttablað Umferðarstofu
föstudagur 1. maí 2009 kl. 00:00
Nú er Tillit, fyrsta tölublað fréttablaðs Umferðarstofa komið út. Markmiðið með útgáfu þess er að veita fjölmiðlum, viðskiptavinum og samstarfsaðilum Umferðarstofu upplýsingar um það sem efst er á baugi í starfsemi stofnunarinnar á hverjum tíma. Þá skiptir einnig miklu að bæta enn frekar aðgengi að áhugaverðum fréttum úr starfsemi Umferðarstofu.
Í þessu fyrsta tölublaði er fjallað um fjölbreytt efni. Gerð er grein fyrir helstu atriðum úr skýrslum um umferðarslys ársins 2008 auk þess sem lesendum gefst kostur á því að skoða skýrsluna. Þar kemur fram m.a. að með tilliti til fólksfjölda var tíðni banaslysa í umferðinni hér á landi í fyrra sú lægsta á Norðurlöndunum annað árið í röð.
Einnig er sagt frá því að Umferðarstofa var valin Stofnun ársins 2009. Meðal efnis er fjallað um nýja veltibíla sem afhentir voru nýlega, sagt frá helstu þáttum í starfsemi Umferðarstofu, gagnvirku slysakorti á heimasíðu stofnunarinnar og helstu tölum varðandi nýskráningu ökutækja og eigendaskipti.
Í nútímanum er eðlilegt að nýta sér tæknina og fyrir bragðið var ákveðið að gefa Tillit út á rafrænu formi, en með því geta allir sem hafa áhuga á málefnum sem tengjast starfsemi Umferðarstofa átt greiðan aðgang að því. Vonandi vekur efni fréttablaðsins áhuga sem flestra, enda má segja að umferðin og umferðarmál snerti okkur öll. Viðtakendum er bent á að vekja athygli samstarfsfólks eða annarra, sem hugsanlega hefur áhuga á að kynna sér efni fréttabréfsins á slóðina http://www.us.is/tillit.
Karl Ragnars



