Um Umferðarstofu
Gagnvirkt slysakort
föstudagur 1. maí 2009 kl. 00:00
Á heimasíðu Umferðarstofu má nú nálgast kort sem sýnir staðsetningu allra umferðarslysa ársins 2008 og 2007 ásamt fyrirliggjandi upplýsingum um hvert og eitt tilfelli. Þetta kort getur verið gagnlegt fyrir þá sem starfa að umferðaröryggismálum og einnig mun kortið gagnast fjölmiðlum.
Hægt er að velja ákveðna tegund slysa sem og ákveðinn alvarleika. Hægt er að nálgast kortið af heimasíðu Umferðarstofu eins og sjá mér á myndinni hér að neðan eða með því að smella hér.



