Umferðaröryggi
Notkun öryggisbelta
mánudagur 20. október 2003 kl. 15:29
Notkun bílbelta er eitt þeirra atriða sem þeir sem vinna að því að auka öryggi í umferðinni leggja áherslu á. Samkvæmt rannsóknum liggur fyrir að ef allir ökumenn og farþegar í bílum spenna alltaf beltin þá megi ætla að hætta á banaslysum minnki umtalsvert, jafnvel um eða yfir 40%. Þannig er ljóst að mikið er í húfi og ástæða til að hvetja fólk til að nota þennan mikilvæga öryggisbúnað.
Umferðarfulltrúar sem störfuðu á vegum Slysavarnafélagsins Lands-bjargar og Umferðarstofu gerðu í sumar viðamiklar kannanir á notkun bílbelta. Kannað væri bæði í þéttbýli og utan þéttbýlis. Notkunin er mun meiri utan þéttbýlis eða 92% ef tölur alls staðar á landinu eru skoðaðar. Hún var hins vegar um 80% á þéttbýlisstöðum.
Nokkrar athyglisverðar niðurstöður koma í ljós þegar þessar tölur eru skoðaðar. Ein er sú, að beltanotkun er í flestum tilfellum talsvert meiri á sunnudögum en í miðri viku. Skýringin á því kann að vera sú, að um helgar er fjölskyldufólk á ferð, en fleiri atvinnubílstjórar í miðri viku. Notkun belta meðal atvinnubílstjóra er mun minni en hjá öðrum. Þörfin fyrir beltin og gagnsemi þeirra er án efa jafnmikil eða jafnvel meiri hjá þeim vegna þess hversu mikið þeir eru á ferðinni. Rökin sem þeir beita þegar þeir eru spurðir hvers vegna þeir séu ekki með bílbeltin spennt eru veigalítil, en oft segja þeir að það sé svo stutt á milli staða þar sem þeir þurfa að stoppa að það taki því ekki að spenna beltið. Við vitum hins vegar að slys geta átt sé stað í næsta nágrenni við heimili okkar og enda þótt við séum að fara stuttan spöl.
Greinilegt er að karlmenn nota síður belti en konur. Þær virðast sýna meiri ábyrgðarkennd í þessum efnum, enda lenda þær síður í alvarlegum slysum heldur en karlar. Það er vegna þess að þær taka ekki eins mikla áhættu í umferðinni og karlar.
Því miður er það alltof algengt að útlendingar sem taka bílaleigubíla hér á landi séu ekki með bílbeltin spennt. Tvö banaslys urðu í sumar þar sem líklegt er að afleiðingarnar hefðu ekki orðið jafn alvarlegar og raun bar vitni hefðu allir í bílunum verið með beltin spennt. Og þá gildir einu hvort fólk situr í framsæti eða aftursæti bifreiðar. Þetta er skylda samkvæmt lögum, en mestu skiptir að það stóreykur öryggi allra sem í bílnum eru.
Samfélagið í nærmynd
20. október 2003 - SH