föstudagur 10. febrúar 2012 kl. 16:47
Alltaf skal hringja í einn einn tvo
dag varð það óhapp á Akureyri að bifreið ók á gangandi vegfarana. Bílstjórinn talaði við þann sem var gangandi sem sannfærð hann um að hann væri ómeiddur. Síðar kom í ljós að hann hafði hlotið minniháttar meiðsl. Ekki var hringt á lögreglu. Umferðarstofa og lögreglan vilja brýna fyrir vegfarendum að alltaf skal hringja á lögreglu í síma einn einn tveir ef óvarinn vegfarandi verður fyrir bifreið því oft koma áverkar í ljós einhverjum tímum eftir óhappið. Dæmi er um barn sem sannfærði bílstjóra að ekkert væri að og hljóp heim til sín - handleggsbrotið.
föstudagur 10. febrúar 2012 kl. 07:15
Víða þungatakmarkanir á vegum
Það eru þungatakmarkanir víða á vegum landsins og eru rekstraraðilar stórra bíla og bílstjórar hvattir til að kynna sér það nánar á heimasíðu Vegagerðarinnar. Hér má sjá kort sem sýnir hvar þungatakmarkanir eru í gildi hverju sinni.
föstudagur 10. febrúar 2012 kl. 06:46
Of hratt ekið við grunnskóla
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur miklar áhyggjur af hraða umferðar í kringum grunnskóla borgarinnar. Hraðinn virðist hafa aukist eftir að götur urðu auðar. Foreldrar eru hvattir til að ganga með börnum sínum í skólann og minnka þannig umferð í kringum skólana. Lögreglan er með sérstakt eftirlit við skóla borgarinnar þessa dagana.
föstudagur 10. febrúar 2012 kl. 06:35
Hlaupandi skuggaverur
Það er töluvert um það að menn skokki meðfram götum og vegum dökkklæddir og án allra endurskinsmerkja. Umferðarstofa vill minna á nauðsyn þess að endurskin séu notuð sérstaklega snemma morguns og eftir að skyggja tekur á kvöldin.
föstudagur 10. febrúar 2012 kl. 06:34
Sérstakt eftirlit lögreglu í febrúar
Nú í febrúar leggur umferðardeild lögreglu höfuðborgarsvæðisins sérstaka áherslu á eftirlit með skoðun ökutækja og því hvort búið sé að greiða ábyrgðatryggingar af ökutækjum. Einnig mun lögregla leggja sérstaka áherslu á eftirlit með notkun farsíma án handfrjálsbúnaðar við akstur.
Eigendum ökutækja er skylt að vera með ábyrgðatryggingu. Ef eigandi ökutækis greiðir ekki iðgjald ábyrgðatryggingar á hann yfir höfði sér endurkröfu um það tjón sem hann veldur með ökutækinu. Slík tjón geta oft á tíðum verið mjög kostnaðarsöm og það borgar sig þ.a.l. ekki að taka neina áhættu í þeim efnum. Það er því allra hagur að þess sé gætt að ábyrgðatryggingar séu fullgildar.
föstudagur 10. febrúar 2012 kl. 06:30
Virða skal rétt gangandi á gulu blikkandi ljósi
Umferðarstofu hafa borist ábendingar frá gangandi vegfarendum um að einstaka ökumenn virði ekki þann rétt sem gangandi hafa þegar gengið er á gulu blikkandi ljósi yfir ljósastýrða gangbraut. Þegar rautt ljós sem skín á bílaumferð breytist í gult má ekki aka af stað fyrr en tryggt er að gangandi séu komnir yfir akbrautina. Svo virðist sem ökumenn virði þetta ekki sem skyldi.
föstudagur 10. febrúar 2012 kl. 06:29
Handfrjáls búnaður ódýrari en sektin
Það er ástæða til að minna þá ökumenn sem tala í síma á meðan á akstri stendur að í flestum tilfellum kostar handfrjáls búnaður minna en sektin sem að er við því að nota slíkan búnað ekki. Best er þó að sleppa því að tala í síma á meðan á akstri stendur og beina athyglinni að akstrinum. Nú í febrúar leggur umferðardeild lögreglu höfuðborgarsvæðisins m.a. sérstaka áherslu á eftirlit með notkun farsíma án handfrjálsbúnaðar við akstur.