Dagskrá Umferðaöryggisvikunnar 23. - 29. apríl.
Hér má sjá brot af því helsta sem fram fer í Umferðaöryggisvikunni.

1. Sýning: Hraði og ölvunarakstur - öryggi fjölskyldunnar 23. - 29. apríl
Sýningin er haldin hjá Sjóvá forvarnarhúsi, Kringlunni en þar verða kynnt umferðaöryggismál undir þemanu hraði og ölvunarakstur en einnig er lögð áhersla á kynningu á mikilvægum þáttum er varða umferðaröryggi fjölskyldunnar. Á sýningunni er m.a. veltibíll, bílbeltasleði, ökuhermir, ölvunargleraugu og margt fleira forvitnilegt sem undirstrikar nauðsyn þess að nota öryggisbúnað bílsins og vera allsgáður á meðan á akstri stendur. Einnig má finna upplýsingar um notkun barnabílstóla, reiðhjólahjálma og margt annað.

2. Fræðslufundir fyrir stjórnmálamenn. Sá fyrsti verður fimmtudaginn 26. apríl kl. 8:15Um er að ræða umræðu og fræðslufund fyrir stjórnmálamenn og fjölmiðla þar sem farið verður yfir helstu atriði umferðaöryggismála í aðdraganda kosninga. Sérfræðingar í þeim efnum fara yfir þau atriði sem brýnast er að bæta úr og setja í forgang við ákvarðanir í vegamálum. Fyrsti fundurinn verður haldinn fimmtudagsmorguninn 26. apríl klukkan 8:15 á Hótel Loftleiðum

3. Breytingar á umferðalögum.
Kynntar verða breytingar á umferðarlögum en í þeim er m.a. gerðar auknar kröfur til nýliða í umferðinni. Auk þess verður veitt  heimild til að gera ökutæki upptækt ef um endurtekin alvarleg umferðalagabrot er að ræða.

4. Akstursæfingar fyrir akstursíþróttafólk á varnarsvæði Keflavíkurflugvallar. Laugardaginn 28. apríl:
Umferðastofa í samstarfi við FÍB og Landsamband íslenskra akstursíþróttafélaga hefur fengið leyfi fyrir akstursíþróttakeppni á gamla varnarsvæðinu. Verið er að koma til móts við óskir akstursíþróttafólks um viðeigandi keppnissvæði og er þetta bráðabirgðaúrlausn þess vanda þar til fullkomið akstursíþróttasvæði verður opnað. Verið er að móta reglur sem miða að því að þeir sem staðnir eru að alvarlegum umferðalagabrotum séu útilokaðir frá keppni og aðgangi að svæðinu. Þær hugmyndir hafa fengið góðar viðtökur meðal forsvarsmanna akstursíþróttafélaga.

5. Ástand ökutækja og öryggi? Laugardag og sunnudag, 28. - 29. apríl:
Í Smáralind verður Frumherji með almennar ráðleggingar til ökumanna með sérstaka áherslu á öryggi barna í bílum. Einnig verða kynnt ýmiss atriði varðandi skoðun og ástand ökutækja, hvort sem um er að ræða bíla, mótorhjól, eftirvagna eða reiðhjól. Kynntur verður öryggisbúnaður fyrir hjólreiðafólk. Dregið verður í happdrætti þar sem barnabílstólar og sitthvað fleira er í verðlaun.  Reynt verður að setja upp leiksvæði fyrir börn þar sem þau geta m.a. ekið til þess gerðum rafmagnsbílum.