Upplýsingatorg
| Útg.nr: | 3 |
| Útg.dags: | 05.12.2005 |
1. Skráning ökutækja
1.9.1 Aldur ökutækja
Aldursviðmiðun ökutækja: Almennt er fyrsti skráningardagur látinn gilda sem aldursviðmiðun ökutækja. Þegar ökutæki er skráð nýtt hér á landi er það nýskráningardagur hér á landi sem gildir sem fyrsti skráningardagur. Ef ökutæki er skráð notað hér á landi eru upplýsingar um fyrsta skráningardag ökutækis sóttar í erlent skráningarskírteini. Ef ekki eru til upplýsingar um fyrsta skráningardag notaðra ökutækja skal skrá upplýsingar um framleiðsludag ökutækis.
[Notuð ökutæki frá Bandaríkjunum og Kanada: Upplýsingar um fyrsta skráningardag koma almennt ekki fram í skráningarskírteinum frá Bandaríkjunum og Kanada. [... ]3). Ef upplýsingar um fyrsta skráningardag finnast ekki eru upplýsingar um framleiðsluár ökutækja lesnar af ökutækjunum sjálfum við skráningarskoðun og skráðar í ökutækjaskrá við nýskráningu.]2)
Viðbótaraldursskráning: Heimilt er að skrá upplýsingar um framleiðsluár til viðbótar við upplýsingar um fyrsta skráningardag, liggi fyrir staðfestar upplýsingar frá framleiðanda. Ef ökutæki var fyrst skráð fyrir 1. janúar 1999 er einnig heimilt að skrá upplýsingar um árgerð samkvæmt leiðbeiningum hér að neðan. Upplýsingar um árgerð voru almennt skráðar fram til þess tíma og því þykir rétt að öll ökutæki frá þeim tíma eigi kost á samskonar skráningu.
Niðurfelling aldursskráningar: Almennt er óheimilt að fella niður skráða aldursviðmiðun. Þó er heimilt að fella niður skráða árgerð á ökutæki sem var forskráð fyrir 1. janúar 1999 en hefur ekki verið nýskráð. Ekki er heimilt að fella niður skráð framleiðsluár.
Skráning árgerðar: Þegar árgerð ökutækis er skráð samkvæmt ofangreindum reglum skal fylgja eftirfarandi reglum:
1. Ef framleiðandi ökutækis ákveður árgerð þess og merkir í verksmiðjunúmer skal við skráningu ökutækis farið eftir þeim upplýsingum.
2. Ef árgerð ökutækis kemur ekki fram í verksmiðjunúmeri skal skrá árgerð ökutækis eftir upplýsingum frá framleiðanda en aðeins skal skrá árgerð komandi árs sé ökutæki framleitt á síðari helmingi ársins.
3. Hafi ökutæki áður verið skráð opinberri skráningu erlendis og tilgreind er árgerð þess skal sú árgerð skráð.
Í öllum amerískum bifreiðum og sumum japönskum (Subaru, Izusu) og evrópskum (Volvo, Saab, Opel, Lada, Skoda) segir tíundi stafur til um árgerð bifreiðarinnar:
| A = 1980 |
E = 1984 |
J = 1988 |
N = 1992 |
T = 1996 |
Y = 2000 |
4 = 2004 |
| B = 1981 |
F = 1985 |
K = 1989 |
P = 1993 |
V = 1997 |
1 = 2001 |
5 = 2005 |
| C = 1982 |
G = 1986 |
L = 1990 |
R = 1994 |
W = 1998 |
2 = 2002 |
6 = 2006 |
| D = 1983 |
H = 1987 |
M = 1991 |
S = 1995 |
X = 1999 |
3 = 2003 |
7 = 2007 |
2) 01.02.2005
3) 05.12.2005



