Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

Útg.nr: 1
Útg.dags: 13.02.2003

1. Skráning ökutækja

1.10.5 Boðun í skoðun af lögreglu


Boðun í skoðun: Lögregla getur boðað ökutæki í skoðun ef vanrækt hefur verið að færa það til almennrar skoðunar eða til endurskoðunar. Einnig ef öryggis- eða mengunarvarnarbúnaði þess er áfátt að mati lögreglu, þótt almenn skoðun þess sé í gildi.

Frestur til skoðunar: Á boðunarmiða lögreglu er kveðið á um þann frest sem gefinn er til að færa ökutækið til skoðunar að hámarki sjö dagar. Fresturinn er ekki framlenging á lögbundnum fresti til að færa ökutæki til reglubundinnar skoðunar, heldur er hér aðeins um að ræða frest vegna afklippingar.

Tilkynning lögreglu: Lögreglan skal tilkynna Umferðarstofu samdægurs um boðun í skoðun.
 
Skráning í ökutækjaskrá: Umferðarstofa skráir boðun í skoðun í ökutækjaskrá og þann frest sem veittur var. Tegund skoðunar verður "Boðun í skoðun" og niðurstaða skoðunar verður "Frestur" og sá frestur sem var tilgreindur er skráður.




Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++