Þetta fréttabréf er einnig aðgengilegt á vef Umferðastofu

Smelltu hér til að sjá áskriftarmöguleika
TILLIT Fréttablað Umferðastofu
Dags
Hlutverk
Umferðarstofu er
að auka
lífsgæði með því
að efla öryggi í
umferðinni
Mynd
21% fleiri alvarlega slasaðir í umferðinni
Svo virðist sem á Íslandi hafi fæstir látið lífið í umferðinni í heimnum miðað við höfðatölu
Árið 2010 er það besta í langan tíma hvað varðar fækkun banaslysa í umferðinni. Fjöldi látinna var 8 og hefur fjöldi látinna á einu ári ekki verið lægri síðan árið 1968. Fjöldi alvarlegra slysa og alvarlega slasaðra eykst hinsvegar mikið og er árið 2010 með því versta sem verið hefur í langan tíma hvað það varðar. Út er komin slysaskýrsla 2010 hjá slysaskráningadeild Umferðarstofu.

Lesa meira...
Mynd
Fræðsla um það hvernig ökumenn geta borið kennsl á lúmska hálku
Umferðarstofa vinnur að gerð heimildamyndar um hálku og hálkumyndun
Ísing og hálka er án efa sá þáttur sem oftast veldur því að ökumenn bregðast rangt við aðstæðum og slys hlýst af enda er hún oft illgreinanleg og fátt hefur eins mikil áhrif á veggrip ökutækis. Umferðarstofa og Vegagerðin eru að vinna að fræðslumynd um hvernig best sé að bera kennsl á lúmska hálku.

Lesa meira...
46,26% aukning í nýskráningu ökutækja hjá Umferðarstofu
Nýskráning ökutækja eykst, það sem af er árinu, eftir samfellda fækkun undanfarin 2 ár
Mikil aukning á sér stað hvað varðar nýskráningu ökutækja hér á landi það sem af er árinu. Eigendaskipti ökutækja eru einnig fleiri en var á sama tíma í fyrra en þó er sú aukning mun minni en í fjölda nýskráninga.

Lesa meira...
Mynd
Aukinn fjöldi slysa á gangandi og hjólandi vegfarendum
Fjöldi þeirra sam slasast alvarlega á reiðhjóli rúmlega tvöfaldast milli ára
Í fyrra var algengasta tegund alvarlegra slysa og banaslysa það að ekið var á fótgangandi en þessi tegund slysa hefur aldrei fyrr verið algengasta tegund alvarlegra slysa í að minnsta kosti 25 ár. Fjöldi þeirra sem slasast alvarlega á reiðhjólum tvöfaldaðist árið 2010. Fer úr 10 árið 2009 í samtals 21 árið eftir.

Lesa meira...
Það getur verið óheimilt að aka yfir þótt grænt ljós sé á gatnamótum
Ökumenn þurfa að gera sér grein fyrir því hvort þeir komist óhindrað yfir á gatnamótum
Það er kveðið á um það í lögum að eigi má aka inn á vegamót á grænu ljósi ef ökumanni má vera ljóst af aðstæðum í umferðinni að hann komist ekki yfir vegamót áður en grænt ljóst kviknar fyrir umferð úr þverstæðri átt. Oft skapast hætta og tafir verða á umferð þar sem ökumenn hunsa þetta.

Lesa meira...
Málþing um hemlabúnað og öryggi stórra bíla og eftirvagna
Gerð verður skyndiskoðun á öryggi stórra bíla
Hemlabúnaður stórra ökutækja var umfjöllunarefni á málþingi sem Umferðarstofa stóð fyrir í byrjun mars. Ætlunin er að endurvekja á næstu misserum svonefndar skyndiskoðanir sem gerðar hafa verið á ástandi stórra bíla og mun Umferðarstofa annast það í samstarfi við lögreglu og fleiri.

Lesa meira...


Umferðarstofa

Smelltu hér til að sjá áskriftarmöguleika