Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Ökuréttindi

Eftirvagnar

Próflýsing

BE/CE/DE - Ökuréttindi
Verklegur hluti eftirvagnaprófs
Próflýsing eftirvagna
1. mars 1998
 
Eftir að próftaki hefur staðist skriflegt próf í ökuskóla og próftökuheimild fengin frá lögreglustjóra getur ökuskóli pantað verklegt próf fyrir nemanda sinn. Prófið fer fram samkvæmt markmiðum námskrár fyrir flokk BE/CE/DE. Prófið skal fara fram á viðurkenndri bifreið til kennslu ásamt eftirvagni skv. III. viðauka reglugerðar um ökuskírteini frá 15. ágúst 1997. Heimilt er að nota hengivagn/kerru við fólksbifreið, festi- eða tengivagn í próf við vörubifreið eða tengi- eða hengivagn við hópbifreið.
Prófið skiptist í tvo hluta. Fyrri hlutinn felur í sér munnlegt próf og æfingar á plani. Próftaki þarf að standast munnlegan þátt til að mega halda áfram í æfingar á plani. Standist próftaki ekki æfingar er prófi hætt án þess að prófað sé í seinni hluta prófs (akstri í umferð) og próftaka tilkynnt að próf sé ekki staðið og hvenær gera megi næstu tilraun. Akstur í umferð skal að lágmarki vera 45 mínútur.

Flæðirit fyrir framgang eftirvagnaprófs.
Aflýsa skal prófi ef veður og færð gerir akstur með eftirvagn hættulegan, ökutæki eru vanbúin eða biluð eða próftaki tilkynnir lögmæt forföll. Ákveða má nýja tilraun til prófs við fyrsta tækifæri. Stöðva skal próf ef próftaki skapar hættu fyrir hann sjálfan eða aðra eða hann fer yfir ákveðin tímamörk æfinga og telst þá próf ekki staðið.
Ökutæki skulu vera lestuð með a.m.k. 50% af leyfðum farmþunga.


Munnlegt próf

Próftaki dregur eitt af sex spjöldum sem í boði eru. Á hverju spjaldi eru 5 spurningar af ólíkum toga um atriði á eftirfarandi lista. Próftaki þarf að ná 60 stigum af 100 til að teljast hafa staðist kröfur varðandi munnlegt próf.
Prófkröfur á munnlegu prófi.
Próftaki skal sýna í verki eða standa skil á spurningum um einhver eftirtalinna atriða:
  • stjórntæki ökutækisins
  • öryggisbúnaður ökumanns og farþega
  • viðbrögð þegar nauðhemlað er með eftirvagn
  • virkni eftirvagnahemla við mismunandi aðstæður
  • áhrif notkunar lyfja, ávana- og fíkniefna á akstur
  • helstu reglur um ökurita og aksturs- og hvíldartíma ökumanna (CE/DE)
  • ábyrgð atvinnubifreiðarstjóra (CE/DE)
  • reglur um frágang farms
  • neyðarhjálp á slysstað
  • öryggiseftirlit utan við vagnlest áður en lagt er af stað
  • öryggiseftirlit þegar inn í bifreið er komið
  • tengingu og aftengingu eftirvagna
  • eftirlit með forðabúrum og slithlutum
  • helstu lögmál um stjórnun og sérkenni mismunandi eftirvagna
  • reglur um hraðatakmarkanir bifreiða með eftirvagn
  • reglur um stærð, lengd, þyngd og ljósabúnað eftirvagna
Prófdómara er ekki heimilt að gefa vísbendingu ef stendur á svari en reyna tvisvar að umorða spurninguna til að draga athyglina að því atriði sem vantar til þess að spurningu teljist vera rétt svarað. Prófdómari þarf að meta gildi svars samkvæmt ákveðnum þáttum og gefur hann ýmist fullkomlega rétt, hálfrétt ef eitthvað í svari er rangt eða vantar eða rangt ef tæpum helmingi spurningar er rétt svarað.


Æfingar

Próftaki skal framkvæma æfingar á sérstöku svæði. Prófdómari getur ákveðið að æfingar fari fram við aðrar aðstæður sem fullnægja settum kröfum. Val æfinga skal vera á milli A og B eftir því sem prófdómari telur henta. Prófdómari skal meta hvort hann dæmir æfingar utan við vagnlest eða inni í bifreið. Próftaki fær 7 mínútur til að framkvæma æfingu. Hann má laga vaglest að vild í æfingu en verður að skila henni í lokahlið innan tímamarka til að standast próf.

Akstur í umferð

Að loknum æfingum skal akstur í umferð prófaður.
Aksturspróf skal halda þar sem reynir á sem flesta þætti sem upp geta komið í daglegri umferð. Hæfni próftaka í akstri bifreiðar með eftirvagn skal prófuð við mismikinn umferðarþunga, þar sem akstursskilyrði geta talist dæmigerð fyrir þá erfiðleika sem geta orðið á vegi ökumanna, þannig að verulega reyni á ökuhæfni próftaka. Við upphaf eða lok prófs gæti próftaki þurft að tengja eða aftengja eftirvagninn. Auk þeirra atriða sem tilgreind eru í prófkröfum til almennra réttinda og réttinda á vörubifreið skulu eftirtalin atriði sérstaklega prófuð í akstri með eftirvagn.


Prófkröfur á akstursprófi

Próftaki skal geta sýnt færni í eftirfarandi atriðum
  • hægri og vinstri beygjum
  • mjúkri hemlun á verulegri ferð
  • að leggja ökutæki
  • hagkvæmri gírskiptingu og réttri notkun kúplingar
  • hagkvæmum akstri og skynsamlegu leiðavali
  • að taka af stað í brekku
  • akstri með viðbúnaði
  • akstri á malarvegi
  • varúð gagnvart gangandi og hjólandi vegfarendum
  • varúð gagnvart öðrum ökutækjum, kyrrstæðum eða á ferð.
  • akreinavali m.t.t. vagnlestarinnar
  • hraðavali miðað við aðstæður
  • akstri um gatnamót og hringtorg
  • notkun speglabúnaðar
  • tengingu og aftengingu eftirvagns
Prófdæming Við verklegan þátt eftirvagnaprófs skal prófdómari nota þar til gerð refsistigablöð sem merkt er á samkvæmt áður ákveðnum þáttum. Hliðstætt villukerfi og er notað við almennt aksturspróf skal notað við próf á eftirvagna. Próftaki skal að lágmarki fá 60 stig fyrir munnlegan hluta og að lágmarki 80 stig fyrir akstur í umferð til að standast prófið. Próflýsing þessi tók gildi 1. mars 1998.



Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++