Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Ökuréttindi

um_okurettindi.jpgUm ökupróf

Frumherji hf. annast framkvæmd ökuprófa samkvæmt samningi við Umferðarstofu. Umferðarstofa hefur umsjón með ökunámi og ökuprófum og annast eftirlit með starfseminni. Umferðarstofa semur skrifleg ökupróf, próflýsingar, viðmiðunarkvarða verklegra ökuprófa og verklagsreglur um framkvæmd samkvæmt gildandi reglugerðum og námskrám. Upplýsingar um daglega framkvæmd ökuprófa, hvar og hvenær þau eru haldin má fá hjá Frumherja hf. Heimasíða þeirra er http://www.frumherji.is/, höfuðstöðvar þeirra eru að Hesthálsi 6 - 8,  110 Reykjavík og afgreiðslusími ökuprófa  570 9070.

Próftökuheimild sýslumanns þarf að liggja fyrir hjá Frumherja hf. áður en hægt er að panta ökupróf, skriflegt eða verklegt.
Umsókn um ökuskírteini er á Höfuðborgarsvæðinu lögð inn hjá
Sýslumanninum í Kópavogi (Dalvegi 18, 201 Kópavogi. Afgreiðsla opin kl. 08:30-15:00),
Sýslumanninum í Hafnarfirði (Bæjarhrauni 18, 220 Hafnarfirði. Afgreiðsla opin kl. 08:30-15:00) og
annars staðar á landinu á skrifstofu viðkomandi sýslumanns.


Ökunámsbók með staðfestingu ökuskóla, ökukennara og ökugerðis um að bóklegu og verklegu námi samkvæmt námskrá sé lokið skal framvísað við komu í skriflegt ökupróf. Við komu í verklegt ökupróf skal ökunámsbók líka framvísað og þá með staðfestingu ökukennara á því að verklegu námi sé lokið með fullnægjandi árangri í samræmi við námskrá.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++