Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Ökuréttindi

okuprof_netinu.jpgÖkupróf á netinu

Verkefni Umferðarstofu

Þú getur æft þig í að taka próf með því að velja æfingapróf. Öryggispróf, Stór ökutæki og Ferðafræði eru skrifleg próf fyrir aukin ökuréttindi (vörubíla-, hópbifreiða- og leigubílaréttindi). Í lok prófsins færðu að vita hvort þú hafir staðist prófið. Ef þú gerir villur færðu jafnóðum að vita réttu svörin.

Veldu æfingapróf hér að neðan.

A-próf Þungt bifhjól
M-próf Létt bifhjól
B-próf Almenn ökuréttindi
ÖR-próf Öryggispróf
SÖ-próf Stór ökutæki
FF-próf Ferðafræði (kemur síðar)

Viljir þú koma einhverjum ábendingum til okkar um prófin eða atriði sem tengjast ökunámi eða ökuprófi biðjum við þig að senda tölvupóst á okurettindi (hjá) us.is.

Önnur innlend verkefni

Hægt er að kanna þekkingu sína með því að leysa verkefni á vefnum.

Ökukennarafélag Íslands býður aðgang að vefsíðu með verkefnum sem eru sambærileg við þau sem notuð eru þegar skriflegt próf til B réttinda er tekið. Skrá þarf eigin kennitölu og starfsnúmer ökukennara til að fá fullan aðgang, án þessarar skráningar er hægt að fá takmarkaðan aðgang:


Ýmis fyrirtæki bjóða auk þes aðgang að verkefnum á vefsvæðum sínum, þar á meðal:

Vinsamlegast athugið að Umferðarstofa getur ekki tekið ábyrgð á þeim spurningum og svörum sem fram koma í verkefnum fyrirtækjanna. Ábendingum um það sem hugsanlega má betur fara er best að koma beint á framfæri við viðkomandi aðila.

 

Erlend verkefni

Hægt er að kanna þekkingu sína með því að leysa erlend verkefni á vefnum. Þessi verkefni líkja eftir bóklega hluta ökuprófs mismunandi landa.

Athuga verður að mismunandi reglur geta gilt og gilda á milli landa hvað varðar umferðarreglur, merkingar, notkun mannvirkja o.fl. Þannig er ekki skilyrðislaust hægt að setja sama sem merki á milli þess sem gildir hér á landi og annars staðar.

Ef ætlunin er að aka erlendis er nauðsynlegt að kynna sér sérstaklega reglur þess lands sem ætlunin er að aka í.

Ef gangast á undir ökupróf verður að miða við að uppfylla kröfur námskrár viðeigandi lands um þekkingu, hæfni og leikni.

 England  Driving Standard Agency
 Danmörk  Dansk Körelærer-Union
 Trafiktesten.dk
 Noregur  Statens vegvesen
 Svíþjóð  Körkortsportalen
 


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++