Ökuréttindi
Kennsluakstur með löggiltum ökukennara
57. grein umferðarlaga:Æfingaakstur á bifreið má því aðeins fara fram, að við hlið nemanda sitji löggiltur ökukennari, sem þá telst stjórnandi bifreiðarinnar. Nemandi telst þó stjórnandi við prófakstur. Nú óskar maður, sem hefur ökuskírteini, að æfa sig í akstri á ný í viðurkenndri kennslubifreið hjá löggiltum ökukennara, og telst þá ökukennari stjórnandi bifreiðarinnar. Ákvæði 44. - 47. gr.a. eiga þó ávallt einnig við um nemandann. (veikindi, áfengisáhrif o.fl.).
Lesa meira...
Æfingaakstur með leiðbeinanda
Úr reglugerð um ökuskírteini:Æfingaakstur með leiðbeinanda
12. gr.
Að fengnu leyfi sýslumanns má umsækjandi um ökuskírteini í ökunámi til réttinda fyrir B-flokk æfa akstur með leiðbeinanda á bifreið í B-flokki enda liggi fyrir staðfesting ökukennara og ökuskóla á því að umsækjandinn hafi nægilega þekkingu og þjálfun til slíks æfingaaksturs. Æfingaakstur með leiðbeinanda kemur ekki í stað æfingaaksturs með ökukennara heldur sem viðbótaræfing. Í æfingaakstri telst leiðbeinandi vera stjórnandi bifreiðar.
Skilyrði leyfis er að leiðbeinandi sé orðinn 24 ára, hafi í a.m.k. fimm ár haft gilt ökuskírteini fyrir B-flokk og hafi ekki á síðustu tólf mánuðum verið án ökuskírteinis vegna sviptingar ökuréttar eða verið refsað fyrir vítaverða aksturshætti. Leyfið má gefa út til allt að 15 mánaða. Sýslumaður getur afturkallað leyfið, fylgi leiðbeinandi ekki reglum um æfingaakstur eða fullnægi ekki lengur skilyrðum leyfis.
Leiðbeinandi skal hafa leyfið meðferðis við æfingaakstur. Honum er óheimilt að taka endurgjald fyrir að leiðbeina umsækjanda.
Umsókn um æfingaleyfi
Eyðublað vegna umsóknar um æfingaleyfi er í ökunámsbók
Umsókn er
á Höfuðborgarsvæðinu lögð inn hjá:
Sýslumanninum í Kópavogi (Dalvegi 18, 201 Kópavogi. Afgreiðslan er opin 9:00 - 15:30) eða
Sýslumanninum í Hafnarfirði (Bæjarhrauni 18, 220 Hafnarfirði. Afgreiðslan er opin 8:30 - 15:00).
Annars staðar á landinu á
skrifstofu viðkomandi sýslumanns.
Áður en umsókn er lögð inn á
- ökunemi að hafa hlotið fullnægjandi kennslu í ökuskóla og hjá ökukennara. Ökukennari skal staðfesta þetta á umsóknareyðublaðinu.
- tryggingarfélag að staðfesta að vátrygging sé í gildi vegna æfingaakstursins.



