Ökuréttindi
| Akstur um hringtorg Á vel hönnuðu hringtorgi er auðvelt að aka. Meginreglan er sú að sá sem ætlar að beygja út úr torginu á fyrstu gatnamótum, skal vera á hægri akrein, það er að segja á ytri akreininni í hringtorginu. Þá er mælt með því að sá sem ætlar að aka framhjá fyrstu gatnamótunum og fara út á öðrum gatnamótum sé alla jafnan einnig á ytri akreininni, þótt ekkert banni honum að fara í innri hring. Ætli ökumenn hins vegar að beygja út úr hringtorgi á þriðju eða fjórðu gatnamótum, skulu þeir fara í innri hring. Ekkert bannar þeim þó að aka í ytri hring, en í mikilli umferð má búast við að þeir valdi truflun og óþægindum fyrir aðra ökumenn haldi þeir sig í ytri akrein fram hjá svo mörgum gatnamótum. Aldrei má skipta um akrein í hringtorgi og hér á landi er reglan sú að umferð á hringtorgi hefur ávallt forgang fyrir þeim sem eru að aka inn í það. Hér er hægt að skoða myndröð þar sem sést hvernig á að aka um hringtorg. |



