Um Umferðarstofu

Hlutverk, gildi og framtíðarsýn Umferðarstofu
Hlutverk Umferðarstofu er eftirfarandi:
Að auka lífsgæði með því að efla öryggi í umferðinni
Gildi
Umferðarstofa hefur fjögur megingildi að leiðarljósi:
Áreiðanleiki, Þjónusta, Árangur og Jákvæðni
Áreiðanleiki
Umferðarstofa leggur áherslu á öryggi í skráningum allra gagna og rekstri upplýsingakerfa þannig að upplýsingar séu aðgengilegar og réttar á hverjum tíma.
Þjónusta
Umferðarstofa vill að ríkur þjónustuvilji einkenni starfsemina. Við leggjum áherslu á að viðskiptavinir og samstarfsaðilar séu ánægðir með störf okkar og leitumst stöðugt við að gera betur.
Árangur
Umferðarstofa leggur áherslu á að ná árangri í umferðaröryggismálum og fækka slysum. Við viljum ná mælanlegum árangri í öllum þáttum starfseminnar.
Jákvæðni
Umferðarstofa leitast við að hafa jákvæða og ánægða starfsmenn, sem endurspeglast í viðmóti þeirra til viðskiptavina og skjólstæðinga stofnunarinnar.
Framtíðarsýn
Umferðarstofa er vinnustaður til fyrirmyndar. Hjá stofnuninni starfa jákvæðir, ánægðir og einbeittir starfsmenn, sem hafa hag viðskiptavina og skjólstæðinga að leiðarljósi.
Umferðaröryggismál á Íslandi verði sambærileg við það sem best gerist hjá öðrum þjóðum. Stefna skal að því að fjöldi látinna og alvarlega slasaðra lækki að jafnaði um 5% á ári til ársins 2016. Til að ná þessum árangri mun Umferðarstofa stuðla að aukinni vegrýni, öflugu umferðareftirliti, markvissum áróðri, áreiðanlegri ökutækjaskráningu, markvissri skráningu umferðarslysa, skilvirku ökunámi og að umferðarfræðsla verði fastur liður í námi allra leik- og grunnskóla. Einnig mun Umferðarstofa stuðla að samræmingu hjá lögreglu, Vegagerðinni, sveitarfélögum, frjálsum félagasamtökum og einstaklingum að markvissum aðgerðum til betra umferðaröryggis.
Umferðarstofa verði nútímaleg og framsækin stofnun, þekkt fyrir framúrskarandi þjónustu, áreiðanleika og frábæran árangur í starfi. Markmiðum verði m.a. náð með sífelldum endurbótum á rafrænum upplýsingakerfum og ökutækjaskrá. Stefnt skal, eftir föngum, að skjallausum viðskiptum
Öflug og markviss rýni skili sér í öruggari ökutækjum, betri vegum og betri ökumönnum.



