Upplýsingatorg

Lög og reglur
Undir þessum lið er að finna lög, reglugerðir og starfsreglur er Umferðarstofa starfar eftir. Tenglar eru inn á tiltekin lög á vef Alþingis. Reglugerðir eru uppfærðar sérstaklega af Umferðarstofu með útgefnum breytingum, en ef upp kemur misræmi milli útgáfu Umferðarstofu og útgáfu Stjórnartíðinda skal sú síðarnefnda ráða. Skráningarreglur í ökutækjaskrá eru gefnar út af Umferðarstofu, með stoð í lögum og reglugerðum um ökutækjaskráningar. Starfsreglur í skoðunarhandbók eru gefnar úr af samgönguráðuneytinu.
Lagabrunnur
Í Lagabrunn má sækja umferðarlög nr. 50/1987, uppfærð á vef Alþingis, frumvarp að lögunum, breytingarlög og frumvörp að þeim. Sjá má hvaða lagagreinar breyting varðar. Í brunninum eru einnig uppfærðar reglugerðir og reglur, settar samkvæmt umferðarlögum en einnig reglugerðir og reglur, eins og þær voru fyrst gefnar út, og breytingar á þeim.Vísað er til þeirra greina umferðarlaga sem reglugerðir og reglur eiga stoð í. Loks eru í brunninum nokkur lög sem tengjast verksviði Umferðarstofu.



