Ökuréttindi
Sektir og refsipunktar
Skrá um vægi brota í punktakerfi og önnur viðurlög sem fylgja þeim brotum svo sem sektir og sviptingar. Yfirlitið er úr reglugerð um ökuferilsskrá og punktakerfi, nr. 929/2006 og reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim nr. 930/2006. Viðurlög við umferðarlagabrotum og brotum á reglugerðum sem tengjast þeim eru aðallega sektir. Við alvarlegustu brotunum s.s. ölvunarakstri og grófum hraðabrotum er auk sekta beitt sviptingu ökuskírteinis í skemmri eða lengri tíma. Við ítrekuðum ölvunarakstri og mjög grófum brotum er auk þess heimilt að gera ökutækið upptækt.
Árið 1997 var tekið upp refsipunktakerfi á Íslandi en slíkt kerfi hafði reynst mjög vel meðal annarra þjóða. Kerfið gerir ráð fyrir að þeir brotlegu í umferðinni safni refsipunktum. Þegar punktar verða 12 á þriggja ára tímabili missir ökumaðurinn ökuréttindin í 3 mánuði. Refsipunktar fyrir brot fyrnast á þremur árum þ.e. punktar fyrir ákveðið brot falla niður af ökuferli ökumannsins þegar þrjú ár eru liðin frá broti. Við útsendingu sektartilkynningar er tekið fram hvort brotið leiði til refsipunkta og þá hversu margra. Einnig er tilgreint hversu marga punkta í heild ökumaðurinn hefur fengið. Refsipunktakvótinn er aðeins minni fyrir þá sem eru með bráðabirgðaskírteini sem er til þriggja ára. Þar er kvótinn 7 refsipunktar á tveggja ára tímabili.
Handhafi bráðabirgðaskírteinis, sem fær 4 refsipunkta í ökuferilsskrá, er settur í ótimabundið akstursbann. Ökuskírteinið fær hann ekki aftur fyrr en hann hefur sótt sérstakt námskeið og tekið ökupróf að nýju. Sama á við ef handhafi bráðabirgðaskírteinis fær sviptingu vegna ölvunaraksturs eða hraðabrots. Akstursbanni er aðeins beitt einu sinni.
Refsipunktum er beitt vegna alvarlegustu brotanna, þó ekki við ölvunarakstri því þar gilda sérstakar sviptinga- og sektarreglur.
Hér að neðan er tafla um þau umferðarlagabrot sem refsipunktakerfið tekur til og þær sektir sem þeim fylgir.
Í þeim tilvikum þegar hópbifreið, önnur bifreið sem er meiri en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd eða bifreið með með eftirvagn eða skráð tengitæki er ekið yfir lögleyfðum ökuhraða skal beita sektarfjárhæðum í eftirfarandi töflum að viðbættu 20% álagi á sektarfjárhæð.
| Tegund brots | Viðurlög | |
|
punktar |
Sekt krónur |
|
| Ekið á 26 km/klst. eða meira yfir leyfilegum hámarkshraða (30-35 km) |
3 |
25.000 |
| Ekið á 36 km/klst. eða meira yfir leyfilegum hámarkshraða (50-60 km) |
3 |
40.000 -50.000 |
| Ekið á 41 km/klst. eða meira yfir leyfilegum hámarkshraða (70 km) |
3 |
60.000 |
| Ekið á 41 km/klst. eða meira yfir leyfilegum hámarkshraða (80-90 km) |
3 |
80.000 - 90.000 |
| Tegund brots | Viðurlög | |
| punktar | Sekt krónur |
|
| Ekið gegn rauðu umferðarljósi |
2 |
10.000 |
| Ekið fram úr rétt áður en komið er að gangbraut eða á henni |
2 |
10.000 |
| Forgangur gangandi vegfarenda á gangbraut eigi virtur |
2 |
10.000 |
| Óhlýðni ökumanns við leiðbeiningu lögreglu |
2 |
10.000 |
| Eigi numið staðar og veitt hjálp |
2 |
15.000 |
| Vanrækt að tilkynna lögreglu um slys |
2 |
10.000 |
| Eigi virt stöðvunarskylda |
2 |
15.000 |
| Eigi virtur almennur forgangur á vegamótum o.fl. (hægri reglan) |
2 |
10.000 |
| Ökuhraði eigi miðaður við aðstæður |
2 |
15.000 |
| Ekið á 21-25 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (30-35 km) |
2 |
20.000 |
| Ekið 31-35 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (50-60 km) |
2 |
30.000 - 40.000 |
| Ekið 31-40 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (70 km) |
2 |
50.000 |
| Ekið 31-40 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (80-90 km) |
2 |
60.000 - 70.000 |
| Akstur bifreiðar eða bifhjóls án þess að hafa öðlast ökurétt (í annað sinn) |
2 |
20.000 |
| Tegund brots | Viðurlög | |
| punktar | Sekt krónur |
|
| Ekið gegn einstefnu | 1 | 5.000 |
| Bann við framúrakstri eigi virt | 1 | 10.000 |
| Ekið eftir gangstétt eða gangstíg | 1 | 5.000 |
| Ökutæki bakkað eða snúið við þannig að hætta eða óþægindi skapast fyrir aðra | 1 | 10.000 |
| Eigi virtur forgangur hópbifreiðar til aksturs frá biðstöð. | 1 | 10.000 |
| Eigi sýnd sérstök aðgát í námunda við merkta skólabifreið sem hefur stansað | 1 | 10.000 |
| Eigi vikið nægilega eða dregið úr hraða | 1 | 5.000 |
| Ekið hægra megin fram úr | 1 | 10.000 |
| Ekið vinstra megin fram úr ökutæki sem er að sveigja til vinstri | 1 | 10.000 |
| Eigi sýnd nægileg varúð við framúrakstur | 1 | 10.000 |
| Eigi vikið nægilega eða framúrakstur torveldaður | 1 | 5.000 |
| Ekið fram úr við eða á vegamótum | 1 | 10.000 |
| Ekið fram úr þegar vegsýn er skert | 1 | 10.000 |
| Eigi virt biðskylda | 1 | 15.000 |
| Ökuljós eigi tendruð þegar birta er ófullnægjandi | 1 | 5.000 |
| Ekið á 16-20 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (30-35 km) | 1 | 15.000 |
| Ekið 26-30 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (50-60 km) | 1 | 25.000 - 30.000 |
| Ekið 26-30 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (70 km) | 1 | 40.000 |
| Ekið 21-30 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (80-90 km) | 1 | 50.000 |
| Brot á sérreglum fyrir bifhjól | 1 | 10.000 |
| Akstur bifreiðar eða bifhjóls án þess að hafa öðlast ökurétt (í fyrsta sinn) | 1 | 10.000 |
| Öryggisbelti ekki notað | 1 | 10.000 |
| Sérstakur öryggisbúnaður fyrir barn ekki notaður | 1 | 10.000 |
| Þess eigi gætt að farþegi yngri en 15 ára noti öryggis- og verndarbúnað | 1 | 15.000 |
| Viðurkenndur hlífðarhjálmur ekki notaður | 1 | 5.000 |
| Þess eigi gætt að farþegi yngri en 15 ára noti hlífðarhjálm | 1 | 15.000 |
| Notkun farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur bifreiðar | 1 | 5.000 |



