Sjónvarpsauglýsingar 2008
Fyrirgefðu - ég sá þig ekki
 |
Auglýsingaherferðin "Fyrirgefðu ég sá þig ekki" er til að vekja bílstjóra til vitundar um mikilvægi þess að þeir hafi fulla athygli við aksturinn og gái að minnsta kosti tvisvar á gatnamótum hvort nokkur hætta sé á því að þeir aki í veg fyrir bifhjól. Það er mun erfiðara að greina fjarlægð og hraða bifhjóla en stærri ökutækja og ein algeng orsök alvarlegra umferðarslysa er að bílstjórar aka í veg fyrir bifhjól. Auglýsingastofan Hvíta húsið vann hugmynd auglýsingarinnar en framleiðslufyrirtækið Republik sá um framleiðslu. Horfa á "Fyrirgefðu ég sá þig ekki" |
15
 |
Það að ökumaður sofnar undir stýri er ein algengasta orsök alvarlegra umferðarslysa en allt eru þetta slys sem auðveldlega má koma í veg fyrir, með því einfaldlega að leggja sig í 15 mínútur. Auglýsingaherferðin "15" er til að brýna þetta fyrir ökumönnum. Auglýsingastofan Hvíta húsið vann hugmynd auglýsingarinnar en framleiðslufyrirtækið Republik sá um framleiðslu. Horfa á "15" |