Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

Slysaskýrsla 2007

Hér gefst kostur á að nálgast Slysaskýrslu ársins 2007.

Hér má nálgast fyrirlestur um ársskýrslu Umferðarslysa á Íslandi árið 2007

Upplýsingar og samantekt úr skýrslu um umferðarslys á Íslandi árið 2007

Forsíðumynd Ársskýrslu Slysaskráningar 2007

Slysaskráning Umferðarstofu byggist á lögregluskýrslum úr gagnagrunni dómsmálaráðuneytisins. Í einhverjum tilfellum rata umferðaróhöpp ekki í gagnagrunninn heldur beint á borð tryggingafélaga en það á yfirleitt við í tilfellum þar sem ekki er um slys á fólki að ræða.


Markmið stjórnvalda á Íslandi í umferðaröryggismálum

 

  • Að fjöldi látinna í umferðinni á hverja 100 þúsund íbúa verði ekki meiri en það sem lægst gerist hjá öðrum þjóðum, fyrir árið 2016.
  • Að fjöldi látinna og alvarlega slasaðra í umferðinni lækki að jafnaði um 5% á ári til ársins 2016
  • Markmiðin miðast við meðaltal fimm ára á undan.

Fjöldi slasaðra og látinna í umferðinni 2007

 

  • Árið 2007 urðu 1147 slys með meiðslum og í þeim slösuðust og létust 1673 manns.  Þar af slösuðust 195 alvarlega, en voru 153 árið 2006.  1174 slösuðust lítið. Hátt í tvöfalt fleiri karlar slösuðust alvarlega en konur árið 2007 eða 125 en konurnar voru 70.
  • 83% þeirra sem slösuðust eða létust voru ökumenn eða farþegar í bílum.  6% voru gangandi vegfarendur, 4% voru á reiðhjólum og 5% ökumenn eða farþegar á bifhjólum.
  • Flest slys og óhöpp í umferðinni verða milli klukkan 16 og 17 síðdegis.
Mynd_Vettvangur_vantar

Banaslys árið 2007

15 létust í 15 umferðarslysum á árinu 2007. Árið 2006 létust 31 í 28 slysum. 11 þeirra sem létust árið 2007 voru ökumenn eða farþegar í bílum, einn var gangandi vegfarandi og þrír bifhjólamenn. Af þeim sem létust voru 13 karlar og 2 konur.

1 lést í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu árið 2007. Var sá utanbæjar og lést því enginn innanbæjar á höfuðborgarsvæðinu.

6 manns létust í umferðinni á síðasta ári af völdum ölvunar eða hraðakstur. Þar af létust tveir þar sem bæði var um ölvun og hraðakstur að ræða.

14 manns af þeim 15 sem létust, létust í dreifbýli. Öll banaslys þar sem ökumenn eða farþegar létust áttu sér stað í dreifbýli. Eina banaslysið í þéttbýli varð þegar ekið var á gangandi vegfaranda.

6 af 11 sem létust sem ökumenn eða farþegar í bílum voru ekki í öryggisbeltum. Að mati Rannsóknarnefndar umferðarslysa hefðu öryggisbelti mjög líklega bjargað í flestum þessara tilfella. Í ljósi þess að yfir 94% aðspurðra segjast aldrei aka utanbæjar án belta er ljóst að þeir fáu sem aka án öryggisbelta eru í mun meiri áhættu í umferðinni en þeir sem spenna beltin.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++