Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi


dekk2b copy.jpg
Hjólbarðarnir mynda einu snertingu bílsins við veginn og því er afar mikilvægt að þeir séu alltaf í góðu lagi og ættu ökumenn að athuga ástand þeirra reglulega. Meðal þess sem ber að huga að er hvort loftþrýstingur sé réttur miðað við stærð hjólbarðanna. Ef loftþrýstingurinn er annað hvort of mikill eða of lítill minnkar snertiflötur hjólbarðanna og um leið veggrip þeirra. Yfirleitt eru upplýsingar um réttan loftþrýsting að finna í handbók bílsins en einnig má spyrjast fyrir hjá þeim sem til þekkja svo sem hjá bifvélavirkjum, starfsmönnum hjólbarðaverkstæða eða skoðunarstöðva. Einnig er mikilvægt að jafn loftþrýstingur sé í hjólbörðunum, það er að segja að það sé sami þrýstingur í hvoru afturhjóli og sami þrýstingur í hvoru framhjóli.

Bíleigendur verða að fylgjast með sliti á hjólbörðum bíla sinna enda minnkar veggrip þeirra við slit og þar með öryggið. Samkvæmt reglugerð má dýpt mynsturraufa í hjólbarða ekki vera minni en 1,6 mm.

Hjólbarðar undir bifreið sem er 3.500 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd skulu allir vera sömu gerðar.

Hjólbarðar sem hæfa aðstæðum
Afar brýnt er að ökumenn noti ávallt dekk sem hæfa þeim aðstæðum sem þeir aka við hverju sinni. Þannig gengur engan veginn að aka um á sléttum sumardekkjum í hálku eða ófærð. Ekki ber ökumönnum þó skylda samkvæmt umferðarlögum til að nota vetrarhjólbarða þegar vetrarfærð ríkir þó að það sé eindregið mælt með því. 

Íslensk tilraun gefur til kynna að talsverður munur sé á hemlunarvegalengd mismunandi tegunda vetrardekkja við mælingu á þurrum ís.
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins gerði sérstaka tilraun fyrir borgarverkfræðing / gatnamálastjórann í Reykjavík, Vegagerðina og Umferðarráð í samstarfi við Skráningarstofuna hf., Frumherja hf. og rannsóknarnefnd umferðarslysa. Hér að neðan er hægt að nálgast fréttatilkynningu og skýrslu um tilraunina sem gefin var út í október 2001.

Hvenær er leyfilegt að hafa nagladekk undir bílnum?
Keðjur og neglda hjólbarða má ekki nota á tímabilinu frá og með 15. apríl til og með 31. október nema þess sé þörf vegna akstursaðstæðna.

Ítarefni um hjólbarða:
Hjólbarðar til vetraraksturs - pistill fluttur í Samfélaginu í nærmynd á Rás 1 þann 03. 11. 2003.
Reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja og síðari breytingar. Í 16 grein er kveðið á um hjól og hjólabúnað.

Fræðslumyndband - Hjólbarðar

You must install the Flash Player to watch this movie online.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++