Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Ökuréttindi

Sérstök námskeið vegna akstursbanns og sviptingar bráðabirgðaskírteinis

Markmiðið með sérstöku námskeiði er að stuðla að bættri hegðun byrjanda í umferðinni og að hann sýni meiri löghlýðni við umferðarreglur.

Sérstakt námskeið er fyrir handhafa fyrsta bráðabirgðaskírteinis sem fær akstursbann við fjórða refsipunkt, fær sviptingu vegna hraðaksturs eða aksturs undir áhrifum áfengis, ávana- eða fíkniefna.

Hver byrjandi fer aðeins einu sinni á slíkt námskeið á tíma bráðabirgðaskírteinis.

Á sérstöku námskeiði er lögð megináhersla á eftirfarandi: 

  • Áhættuþættir umferðar.
  • Ábyrgð ökumanns og viðhorf til áhættutöku.
  • Skilningur byrjandans á tilgangi umferðar og áhrifum sálrænna og félagslegra þátta.
  • Hæfni byrjandans til að taka ábyrgar ákvarðanir í umferðinni.
  • Fylgni byrjandans við fyrirmæli umferðarlaga, reglugerða og annarra reglna sem settar eru um akstur og umferð og skilningur hans á þeim.

Námskeiðið tekur þjár vikur, er í fjórum lotum, þrjár kennslustundir í senn með viku millibili, alls 12 kennslustundir. Auk þess eru tveir verklegir ökutímar. Sá sem er í akstursbanni getur farið á sérstakt námskeið þegar það býðst og þegar það hentar honum.

Kennt er í samræmi við námskrá Umferðarstofu:

Að námskeiði loknu leggur byrjandinn inn umsókn um endurveitingu ökuskírteinis með vottorði um að námskeiði sé lokið. Þá er gefin út próftökuheimild og þarf byrjandinn að endurtaka ökuprófið, bæði skriflega og verklega prófið.

Fylla þarf út skráningarform hér að neðan. Síðan að velja ökuskóla af listanum sem birtist hér fyrir neðan. 

* Nafn:
* Kennitala:
* Heimilisfang:
* Póstnúmer:
* Sveitarfélag:
* Sími:
* Netfang:
* Námskeið vegna:  akstursbanns
 hraðaksturs
 ölvunar-/fíkniefnaaksturs
Svipting rennur/rann út í:
Óska eftir námskeiði í:
   


Eftirfarandi ökuskólar hafa leyfi Umferðarstofu til að halda námskeið. Námskeið hefst á tilgreindum degi, fáist næg þátttaka (6 til 12 þátttakendur).

Námskeið eru haldin annars staðar á landinu eftir þörfum. Getur þú ekki nýtt þér námskeið á þeim stöðum sem boðið er upp á hér fyrir neðan skaltu senda póst á okuprof@us.is

Það verður að skrá sig á námskeið hjá skólanum áður en námskeið hefst.

Upplýsingar um næstu sérstöku námskeið

 

 

Námskeið haldin í Reykjavík:

Næsta námskeið

Ökukennsla 17.is
Kennslutími: Laugardaga kl. 13.00 - 15.30
Staður:  Skeifan 11B, Reykjavík
Kennarar:  Sigurður Jónasson og Gunnsteinn Rúnar Sigfússon, ökukennarar
Námskeiðsgjald: kr. 39.900
Nánari upplýsingar og skráning er hjá Sigurði í s. 822 4166 eða í siggi@17.is,
Heimasíða: http://www.17.is

 11. september

Ökuskóli Kópavogs
Kennslutími: Mánudaga kl. 18.00 - 20.30
Staður:  Fjölbrautaskólanum í Breiðholti (FB), stofa 201, Reykjavík.
Kennarar:  Guðjón Ó Magnússon og Brynjar M. Valdimarsson, ökukennarar
Námskeiðsgjald: kr. 60.000
Nánari upplýsingar og skráning er hjá Guðjóni í s. 897 3660, eða í gom@fb.is
Heimasíða:

 

Ökuskóli Suðurlands - námskeið í Reykjavík
Kennslutími: Þriðjudaga kl. 18.00 - 20.30
Staður:  Klettagarðar 11, Reykjavík
Kennarar:  Grímur Bjarndal og Ólafur Björn Lárusson, ökukennarar
Námskeiðsgjald: kr. 41.900
Nánari upplýsingar og skráning er hjá Grími, s. 820 0090 eða í  bjarndal@mi.is
Heimasíða: http://www.okuskoli.is

7. september 

Ökuskólinn í Mjódd
Kennslutími: þriðjudaga kl. 17.00 - 19.30.
Staður:  Ökuskólinn í Mjódd, Þarabakka 3, Reykjavík
Kennarar:  Umsjónarkennari er Guðbrandur Bogason ökukennari. Með honum eru: Einar Guðmundsson, Sjóvá Forvarnahúsinu, Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur, Sigrún Garðarsdóttir iðjuþjálfi, Sigurður Helgason Umferðarstofu, Svavar Svavarsson sóknarprestur og ökukennari og Þórður Bogason ökukennari slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður.
Námskeiðsgjald: kr. 60.000, 40.000 ef staðgreitt er.
Nánari upplýsingar og skráning er í s. 567 0300  eða í mjodd@bilprof.is
Heimasíða: http://www.bilprof.is

 

 

 

 

Námskeið haldin utan Höfuðborgarsvæðisins:

Næsta námskeið

AKUREYRI

Ökuskólinn á Akureyri
Kennslutími: Fimmtudaga kl. 16.30 - 19.00
Staður:  Sunnuhlíð 12, Akureyri
Kennarar:  Steinþór Þráinsson og Baldvin Hallgrímsson, ökukennarar
Námskeiðsgjald: kr. 45.000
Nánari upplýsingar og skráning er hjá Baldvin í s. 869 9782 eða í ballih@simnet.is
Heimasíða: www.aktu.is

 

EGILSSTAÐIR

Ökukennsla 17.is
Kennslutími: Fimmtudaga kl. 16.00 - 18.30
Staður: Egilsstaðir
Kennarar:  Sigurður Jónasson og Gunnsteinn Rúnar Sigfússon, ökukennarar
Námskeiðsgjald: kr. 49.900 - 59.900
Nánari upplýsingar og skráning er hjá Sigurði í s. 822 4166 eða í siggi@17.is,
Heimasíða: http://www.17.is

 

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++