Umferðaröryggi
Takmörkum á lausagöngu búfjár
Aukin áhersla verður lögð á að girða af vegi þar sem áhætta vegfarenda vegna lausagöngu búfjár er mest. Áætlað er að girða við rúmlega 300 km vega á tímabilinu 2005-2008 þar sem um 30% slysa og óhappa af þessu tagi verða. Væntanlegur ávinningur aðgerða er fækkun látinna um 0,1 á ári og fækkun alvarlegra slasaðra um 0,7 að meðaltali á ári.



