Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Frá því að grunnskólinn fluttist til sveitarfélaga hefur umferðarfræðsla í grunnskólum landsins ekki verið í föstum skorðum. Í umferðaröryggisáætlun er fyrirhugað að efla þá fræðslu til muna með því að gera hana að föstum lið í námskrá leikskóla og grunnskóla og jafnvel að koma á samþættingu umferðarfræðslu inn í framhaldskóla.

            Markmið fræðslunnar er að:

  1. koma umferðarfræðslu inn í skólanámskrár allra grunnskóla
  2. halda námskeið í umferðarfræðslu fyrir grunnskólakennara í grunnskólum landsins þeim að kostnaðarlausu
  3. vera öðrum grunnskólum í landinu til fyrirmyndar til ráðgjafar á sviði umferðarfræðslu
  4. efla námsefnisgerð í umferðarfræðslu og stuðla að þróun náms- og fræðsluvefs um umferðarmál.

Gerður var sérstakur samningur á milli Umferðarstofu og Grundaskóla á Akranesi haustið 2005 um eflingu umferðarfræðslu á grunnskólastigi. Grundaskóli er móðurskóli í umferðarfræðslu og þannig öðrum grunnskólum á Íslandi til fyrirmyndar og ráðgjafar á þessu sviði.

Jafnframt var unnið að gerð sérstaks fræðsluvefs í samvinnu við Námsgagnastofnun, sem var formlega opnaður í janúar 2006. Fræðsluvefinn er að finna á www.umferd.is.

Markmið þessa aðgerða er að fækka slysum á börnum um 10% og að ávinningur aðgerða verði því fækkun látinna um 0,2 og fækkun alvarlegra slasaðra um 1,0 að meðaltali á ári.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++