Umferðaröryggi
2004
30 km
Umferðarstofa hefur látið gera auglýsingu sem nefnist ,"30 km" en nafnið vísar til þess að í íbúðarhverfum og nágrenni skóla er 30 km hámarkshraði. Auglýsingin er til að vekja ökumenn til vitundar um þá ábyrgð sem þeir almennt bera í umferðinni en þó sérstaklega á svæðum þar sem börn eiga leið um. Börnin sjá og skynja umhverfi sitt með öðrum hætti en fullorðnir og því verða þau að geta treyst því að fullorðnir veiti þem öryggi í umferðinni.
Handrit auglýsingarinnar kemur frá Íslensku auglýsingastofunni.
Hvað þarf til að stoppa þig?
Auglýsing Umferðarstofu og Vínbúðarinnar "vað þarf til að stoppa þig?"er til að vekja fólk til vitundar um þær skelfilegu afleiðingar sem geta hlotist af ölvunarakstri. Það að vera valdur af dauða einhvers með því einu að hafa ekið undir áhrifum áfengis skilur eftir óþægilegar hugsanir og tilfinningar sem aldrei verður hægt að bægja frá sér eða gleyma. Ölvunarakstur er ein algengasta orsök alvarlegra umferðarslysa og jafnframt sú orsök slysa sem hvað auðveldast er að útrýma - með því einfaldlega að setjast ekki undir stýri eftir að hafa neitt áfengis.
Handrit kemur frá auglýsingastofunni Hvíta húsið.



