Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

2005

Ert þú góð fyrirmynd?

Auglýsingarnar "Ert þú góð fyrirmynd" eru til þess gerðar að vekja foreldra og forráðamenn barna til umhugsunar um það hvers konar fyrirmyndir þau sjálf eru í umferðinni. Er áhorfandinn börnum góð fyrirmynd hvað varðar aksturslag? Ekur hann/hún á ólöglegum hraða og kennir þar með barninu sínu viðlíka áhættuhegðun eða er hún/hann með ruddaskap og tillitsleysi í umferðinni o.s.frv.?

Af hverju skildi Umferðarstofa sjá ástæðu til að taka á einhverju fúkyrðaflaumi og dónaskap manna í umferðinni? Frá þessari hegðun er mjög stutt í áhættuhegðun sem að reynist hættuleg. Þetta kemur fram í fjölda slysaskýrslna og vitnisburði um aðdraganda umferðarslysa. Þetta er hegðun sem hugsanlega eitthvert barn - ökumaður framtíðarinnar ? verður vitni að.

Auglýsingastofan Hvíta Húsið lagði fram handrit að herferðinni.

Umferðin snýst um líf

Herferð Umferðarstofu, "Umferðin snýst um líf" hefur hlotið mikla athygli og vakið upp umræðu um alvarlegar afleiðingar áhættuhegðunar fólks í umferðinni. Hugmyndin með auglýsingunum er að bera saman áhættuhegðun sem oft viðgengst í umferðinni við annarskonar áhættuhegðun sem virðist vekja upp miklu sterkari viðbrögð meðal fólks þótt mögulegar afleiðingarnar séu sambærilegar.

Auglýsingastofan Himinn og haf lagði fram handrit og hugmyndir af auglýsingunum en framleiðslufyrirtækið Pegasus sá um framleiðslu þeirra.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++