Umferðaröryggi
Útvarpsauglýsingar
2007
Bara einn
Ætli einhverjum finnist í lagi að kennari, flugumferðarstjóri, tannlæknir eða kranastjóri neyti áfengis við vinnu sína með alla þá ábyrgð sem því fylgir? Án efa eru það fáir ef einhverjum sem finnst það í lagi. Þrátt fyrir það eru u.þ.b. 50 þúsund Íslendingar þeirrar skoðunar að það sé í lagi að fara út að keyra eftir að hafa neytt eins áfengs drykks skv. niðurstöðum rannsóknar sem Umferðarstofa hefur staðið fyrir. Í þessari auglýsingaherferð er verið að vekja ökumenn til umhugsunar um alvarleika þess að aka undir áhrifum áfengis – jafnvel þótt aðeins hafi verið dreypt á einu glasi. Það er undirstrikað að ábyrgðin getur verið síður minni að vera ökumaður en flugumsjónarmaður og það ættu ökumenn að hafa í huga þegar þeir velta því fyrir sér hvort það sé í lagi að stjórna ökutæki eftir neyslu áfengis. Auglýsingin var unnið í samstarfi við Vinbúð en auglýsingastofan Hvíta húsið sá um hugmyndavinnu auglýsingarinnar en Sagafilm annaðist framleiðslu.



