Umferðaröryggi
2004
30 km
| Umferðarstofa hefur látið gera sjónvarpsauglýsingu sem nefnist ,,30 km? en nafnið vísar til þess að í íbúðarhverfum og nágrenni skóla er 30 km hámarkshraði. Auglýsingin er til að vekja ökumenn til vitundar um þá ábyrgð sem þeir almennt bera í umferðinni en þó sérstaklega á svæðum þar sem börn eiga leið um. Börnin sjá og skynja umhverfi sitt með öðrum hætti en fullorðnir og því verða þau að geta treyst því að fullorðnir veiti þem öryggi í umferðinni. Handrit auglýsingarinnar kemur frá Íslensku auglýsingastofunni en um framleiðslu sá Saga film. |
Hægðu á þér
| ,,Hægðu á þér" er yfirskrift auglýsinga sem Umferðarstofa hefur látið gera. Um er að ræða sjónvarpsauglýsingu, útvarpsauglýsingar og auglýsingar til birtingar í dagblöðum og á biðskýlum. Ökuhraði er áhersluatriði auglýsinganna en samkvæmt niðurstöðum slysarannsókna er of mikill hraði meðal helstu orsaka banaslysa og annarra alvarlegra umferðarslysa hér á landi eins og í flestum öðrum löndum. Farnar eru nýjar leiðir í gerð þessarar auglýsingar og sömu sögu er að segja um fleiri auglýsingar sem munu birtast á næstu mánuðum og misserum. Reynt er að hafa skilaboðin sem allra skýrust og skorinorðust, að þau fái ökumenn til að hugsa sinn gang í þeirri von að boðskapurinn skili sér í betri og öruggari umferð. Auglýsingastofan Hvíta húsið vann sjónvarpsauglýsinguna í samvinnu við Spark kvikmyndagerð. |
Hvað þarf til að stoppa þig?
|
|
Auglýsing Umferðarstofu og Vínbúðarinnar ,,Hvað þarf til að stoppa þig?" er til að vekja fólk til vitundar um þær skelfilegu afleiðingar sem geta hlotist af ölvunarakstri. Það að vera valdur af dauða einhvers með því einu að hafa ekið undir áhrifum áfengis skilur eftir óþægilegar hugsanir og tilfinningar sem aldrei verður hægt að bægja frá sér eða gleyma. Ölvunarakstur er ein algengasta orsök alvarlegra umferðarslysa og jafnframt sú orsök slysa sem hvað auðveldast er að útrýma - með því einfaldlega að setjast ekki undir stýri eftir að hafa neitt áfengis.
Handrit kemur frá auglýsingastofunni Hvíta húsið en Base Camp sá um framleiðslu. |



