Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

2005

Er áhættan þess virði?

Rammi úr sjónvarpsauglýsinguni: Augnarblik Rammi úr sjónvarpsauglýsinguni: Hraði Rammi úr sjónvarpsauglýsinguni: Leika Rammi úr sjónvarpsauglýsinguni: Dáinn Hér gefur að líta sjónvarpsauglýsingar sem eru hluti auglýsingaherferðar sem hlotið hefur nafnið, "Er áhættan þess virði?". Við undirbúning að gerð þessara auglýsinga var skoðaður fjöldi vitnisburða sem fram kemur í gögnum úr slysaskýrslum lögreglu.

Út frá þeim gögnum og rannsóknum á slysunum var síðan búin til frásögn sem lýst getur þeim hugsunum sem leituðu á ökumann eða fórnarlamb umferðarslyss rétt áður en tiltekið slys átti sér stað. Þetta eru frásagnir byggðar á raunverulegum atburðum og lýsa aðstæðum sem mjög oft eiga sér stað. Auglýsingarnar eru tileinkaðar minningu þeirra sem hafa látist af völdum umferðarslysa.

Auglýsingastofan Hvíta húsið lagði fram handrit og hugmyndir að herferðinni en Saga film sá um framleiðslu.

Ert þú góð fyrirmynd?

Rammi úr sjónvarpsauglýsinguni: 30km Auglýsingarnar "Ert þú góð fyrirmynd" eru til þess gerðar að vekja foreldra og forráðamenn barna til umhugsunar um það hvers konar fyrirmyndir þau sjálf eru í umferðinni. Er áhorfandinn börnum góð fyrirmynd hvað varðar aksturslag? Ekur hann/hún á ólöglegum hraða og kennir þar með barninu sínu viðlíka áhættuhegðun eða er hún/hann með ruddaskap og tillitsleysi í umferðinni o.s.frv.?

Af hverju skildi Umferðarstofa sjá ástæðu til að taka á einhverju fúkyrðaflaumi og dónaskap manna í umferðinni? Frá þessari hegðun er mjög stutt í áhættuhegðun sem að reynist hættuleg. Þetta kemur fram í fjölda slysaskýrslna og vitnisburði um aðdraganda umferðarslysa. Þetta er hegðun sem hugsanlega eitthvert barn - ökumaður framtíðarinnar ? verður vitni að.

Auglýsingastofan Hvíta Húsið lagði fram handrit að herferðinni en framleiðslu sjónvarpsauglýsinganna annaðist Spark kvikmyndagerð.

Umferðin snýst um líf

Rammi úr sjónvarpsauglýsinguni: Augnarblik Rammi úr sjónvarpsauglýsinguni: Hraði Rammi úr sjónvarpsauglýsinguni: Leika Rammi úr sjónvarpsauglýsinguni: Dáinn Herferð Umferðarstofu, "Umferðin snýst um líf" hefur hlotið mikla athygli og vakið upp umræðu um alvarlegar afleiðingar áhættuhegðunar fólks í umferðinni. Hugmyndin með auglýsingunum er að bera saman áhættuhegðun sem oft viðgengst í umferðinni við annarskonar áhættuhegðun sem virðist vekja upp miklu sterkari viðbrögð meðal fólks þótt mögulegar afleiðingarnar séu sambærilegar.

Auglýsingastofan Himinn og haf lagði fram handrit og hugmyndir af auglýsingunum en framleiðslufyrirtækið Pegasus sá um framleiðslu þeirra.

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++