Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

Slysaskýrsla 2006

Hér gefst kostur á að nálgast Slysaskýrslu ársins 2006 og fyrirlestur sem inniheldur útdrátt úr skýrslunni:

Upplýsingar og samantekt úr skýrslu um umferðarslys á Íslandi árið 2006

Forsíðumynd Ársskýrslu Slysaskráningar 2006

Slysaskráning Umferðarstofu byggist á lögregluskýrslum úr gagnagrunni dómsmálaráðuneytisins. Í einhverjum tilfellum rata umferðaróhöpp ekki í gagnagrunninn heldur beint á borð tryggingafélaga en það á yfirleitt við í tilfellum þar sem ekki er um slys á fólki að ræða.


Markmið stjórnvalda á Íslandi í umferðaröryggismálum

  • Að fjöldi látinna í umferðinni á hverja 100 þúsund íbúa verði ekki meiri en það sem lægst gerist hjá öðrum þjóðum, fyrir árið 2016.
  • Að fjöldi látinna og alvarlega slasaðra í umferðinni lækki að jafnaði um 5% á ári til ársins 2016
  • Markmiðin miðast við meðaltal fimm ára á undan.

Fjöldi slasaðra og látinna í umferðinni 2006

  • Árið 2006 urðu 887 slys með meiðslum og í þeim slösuðust og létust 1358 manns.  Þar af slösuðust 153 alvarlega, en voru 129 árið 2005.  1174 slösuðust lítið. Tvöfalt fleiri karlar slösuðust alvarlega en konur árið 2006 eða 102 en konurnar voru 51.
  • 85% þeirra sem slösuðust eða létust voru ökumenn eða farþegar í bílum.  6% voru gangandi vegfarendur og 5% ökumenn eða farþegar á bifhjólum.
  • Langflestir slösuðust alvarlega eða létust árið 2006 í júlí og ágúst eða 62.  Meira en þrisvar sinnum fleiri slösuðust alvarlega eða létust í júlí 2006 en 2005.
  • Flest slys og óhöpp í umferðinni verða milli klukkan 16 og 17 síðdegis.
Mynd_Vettvangur_vantar

Banaslys árið 2006

31 lést í 28 umferðarslysum á árinu 2006.  Árið 2005 létust 19 í 16 slysum.  23 þeirra sem létust voru ökumenn eða farþegar í bílum, fjórir voru gangandi vegfarendur, þrír bifhjólamenn og einn hestamaður.  Leita þarf allt aftur til ársins 1991 til að finna jafn marga látna bifhjólamenn eins og á síðasta ári.  Af þeim sem létust voru 20 karlar og 11 konur.

13 manns létust í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu árið 2006. Það eru jafnmargir og létust á svæðinu samanlagt næstu fjögur ár á undan.

13 manns
létust í umferðinni á síðasta ári þar sem of mikill hraði var meðal orsaka.  Af þeim létust 10 manns vegna ofsaaksturs.  Þar er átt við kappakstur og annan akstur sem telja verður til fífldirfsku.  Lögregla mun á næstu mánuðum auka eftirlit með hraðakstri verulega.  Svokölluðum ,,eywitnesstækjum” verður fjölgað og meðal annars sett á lögreglubifhjól, bæði þau sem fyrir eru og einnig á fjögur ný hjól sem væntanleg eru til landsins.  Þá styttist  í að sjálfvirkar hraðamyndavélar verði settar upp á þjóðvegum landsins.

8 manns
létust í umferðinni af völdum ölvunaraksturs. Auk þess lést einn gangandi ölvaður vegfarandi og einn ölvaður hestamaður. Þetta eru 10 dauðsföll á einu ári sem rekja má til ölvunar.  Þetta er hæsta hlutfall ölvunar í banaslysum á undanförnum áratugum. Nú þegar er hafin ný auglýsingaherferð frá Umferðarstofu gegn ölvunarakstri og einnig mun lögregla um land allt stórauka ölvunareftirlit.  Stefnt er að því að styrkja verulega samspil auglýsinga um bætta umferðarhegðun og eftirlit lögreglu, þar sem fyrir liggur að slíkt samstarf er forsenda fyrir því að ná hámarksárangri.

9 af 23 sem létust sem ökumenn eða farþegar í bílum voru ekki í öryggisbeltum.  Í 4 tilfellum liggur ekki fyrir hvort þau voru notuð.  Að mati Rannsóknarnefndar umferðarslysa hefðu öryggisbelti mjög líklega bjargað í flestum þessara tilfella!

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++