Umferðaröryggi
-
Bremsur í lagi á fram og afturhjóli
-
Bjalla - ekki má nota annan hljóðmerkjabúnað
-
Ljós að framan - hvítt eða gult (ef hjólað er í myrkri eða skertu skyggni)
-
Rautt ljós að aftan (ef hjólað er í myrkri eða skertu skyggni)
-
Þrístrennd glitaugu - rautt að aftan og hvítt að framan
-
Keðjuhlíf - til varnar því að fatnaður festist í keðjunni
-
Teinaglit í teinum
-
Glitaugu á fótstigum
-
Lás
Leggja ætti áherslu á að nota einnig:
-
Hjólvara (bílafælu) - viðvörunarstöng með endurskini sem hægt er að beina út frá hjólinu
-
Standara
Höfuðmeiðsl eru alvarlegustu áverkar sem hljótast af hjólreiðaslysum. Notkun hlífðarhjálms kemur ekki í veg fyrir slysin en dregur úr alvarleika þeirra og minnkar líkurnar á alvarlegum höfuðmeiðslum. Hjálmur getur greint á milli heilahristings og höfuðkúpubrots og jafnvel lífs og dauða. Sérstaklega er mikilvægt að börn noti hlífðarhjálm við hjólreiðar enda eru höfuð þeirra minni og viðkvæmari en þeirra sem eldri eru.
Ganga verður úr skugga um að hjálmurinn sé prófaður af viðurkenndri stofnun og merktur með CE-merki. Mikilvægt er að máta hjálminn í versluninni áður en hann er keyptur. Góður hjálmur verndar enni, hnakka, gagnaugu og koll og er mjúkur næst höfðinu. Hann passar vel, situr þétt á höfðinu og rennur ekki aftur á hnakka. Verið viss um að hjálmurinn hindri hvorki sjón né dragi úr heyrn. Hjálmurinn skal enn fremur vera léttur og með loftopum og hafa stillanlegt hökuband og spennu sem auðvelt er að opna og loka. Spennan á að vera til hliðar en ekki undir hökunni. Síðast en ekki síst er góður hjálmur auðveldur í notkun og létt að þrífa.
- Hvernig notar maður hjólreiðahjálminn?
Hjálmurinn verður að sitja rétt á höfðinu og alls ekki of aftarlega. Hann skal enn fremur sitja þétt svo að hann hvorki detti af né skekkist þegar á reynir. Böndin eiga að vera rétt stillt. Aftara bandið skal stillt á móti fremra bandi þannig að eyrað lendi í miðju V-forminu sem böndin mynda. Hvorki má líma merki á hjálminn né mála hann því að þá getur höggþolið minnkað. Af sömu ástæðu má aðeins hreinsa hjálminn með vatni og sápu en ekki uppleysandi efnum svo sem þynni, bensíni o.s.frv. Hjálminn á ekki að nota í leiktækjum.
- Mega hjólreiðamenn hjóla á gangstéttum?
Samkvæmt umferðarlögum er heimilt að hjóla á gangstétt og gangstíg, enda valdi það ekki gangandi vegfarendum hættu eða óþægindum. Hjólreiðamaður á gangstétt eða gangstíg skal víkja fyrir gangandi vegfarendum. Þegar nauðsynlegt er að koma í veg fyrir hættu skal hjólreiðamaður gefa hljóðmerki. Sums staðar er notkun reiðhjóla bönnuð á gangstéttum og er þá vakin athygli á því með viðeigandi skiltum.



