Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Skiltið að svínahrauni.jpg

Hlutverk Umferðarstofu er að auka lífsgæði fólks með því að efla öryggi í umferðinni. Umferðaröryggi er því einn af hornsteinum í starfsemi Umferðarstofu. Eitt af meginmarkmiðunum er að umferð sé örugg fyrir alla. Þeir ferlar innan Umferðarstofu sem eiga að styðja það markmið er markviss áróður, öflug og markviss umferðarfræðsla, öflugt og vandað ökunám og samstarf og samhæfing aðgerða sem grundvallast á ítarlegri þekkingaröflun, t.d. skráningu umferðarslysa. Jafnframt er þess gætt að ökutæki uppfylli kröfur við skráningu og að skoðun ökutækja sé vönduð og fagleg.

 

Stjórnvöld hafa sett sér langtímamarkmið í umferðaröryggismálum. Þau eru að fjöldi látinna í umferð á hverja 100.000 íbúa verði ekki meiri en það sem lægst gerist hjá öðrum þjóðum. Meðalfjöldi látinna í umferð síðustu 10 ár er um níu á hverja 100.000 íbúa. Til samanburðar má nefna að í þeim löndum sem náð hafa hvað bestum árangri á sama tímabili létust um sex af hverjum 100.000 íbúum í umferðinni. Ísland er nálægt Finnum hvað þetta varðar en þeir eru með svipaða dánartíðni og við og eru að mörgu leyti í svipaðri stöðu með dreifbýlt land þar sem ungt fólk fær ökuréttindi snemma og einkabíllinn er allsráðandi samgöngutæki. Sjálfsagt væru aðrir mælikvarðar sanngjarnari fyrir okkur Íslendinga, t.d. ef miðað væri við ekna kílómetra eða fjölda bifreiða á hvern íbúa, en eftir sem áður er fjöldi banaslysa hér á landi óásættanlegur og við því þarf að bregðast með ákveðnum hætti.

 

 


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++