Umferðaröryggi
Sektir og viðurlög
Árið 1997 var tekið upp refsipunktakerfi á Íslandi en slíkt kerfi hafði reynst mjög vel meðal annarra þjóða. Kerfið gerir ráð fyrir að þeir brotlegu í umferðinni safni refsipunktum. Þegar punktar verða 12 á þriggja ára tímabili missir ökumaðurinn ökuréttindin í 3 mánuði. Refsipunktar fyrir brot fyrnast á þremur árum þ.e. punktar fyrir ákveðið brot falla niður af ökuferli ökumannsins þegar þrjú ár eru liðin frá broti. Við útsendingu sektartilkynningar er tekið fram hvort brotið leiði til refsipunkta og þá hversu margra. Einnig er tilgreint hversu marga punkta í heild ökumaðurinn hefur fengið. Refsipunktakvótinn er aðeins minni fyrir þá sem eru með bráðabirgðaskírteini sem er til þriggja ára. Þar er kvótinn 7 refsipunktar á þriggja ára tímabili. Refsipunktum er beitt vegna alvarlegustu brotanna, þó ekki við ölvunarakstri því þar gilda sérstakar sviptinga- og sektarreglur.
Skrá um vægi brota í punktakerfi og önnur viðurlög sem fylgja þeim brotum svo sem sektir og sviptingar má sjá hér í reglugerð um ökuferilsskrá og punktakerfi, nr. 929/2006. Reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim nr. 930/2006 má finna hér. Viðurlög við umferðarlagabrotum og brotum á reglugerðum sem tengjast þeim eru aðallega sektir. Við alvarlegustu brotunum s.s. ölvunarakstri og grófum hraðabrotum er auk sekta beitt sviptingu ökuskírteinis í skemmri eða lengri tíma. Við ítrekuðum ölvunarakstri og mjög grófum brotum er auk þess heimilt að gera ökutækið upptækt.
Handhafi bráðabirgðaskírteinis, sem fær 4 refsipunkta í ökuferilsskrá, er settur í ótímabundið akstursbann. Ökuskírteinið fær hann ekki aftur fyrr en hann hefur sótt sérstakt námskeið og tekið ökuprófið að nýju. Sama á við ef handhafi bráðabirgðaskírteinis fær sviptingu vegna ölvunaraksturs eða hraðabrots. Þá er gert ráð fyrir að sá brotlegi fari aðeins einu sinni á námskeiðið á tíma bráðabirgðaskírteinis.
Útbúnir hafa verið sérstakir sektarreiknar fyrir hraðakstur og ölvunarakstur þar sem notendur síðunnar geta valið sér skilyrði og fengið út hver refsingin kemur til með að verða. Smellið á viðeigandi sektarreikni.
Sektarreiknir fyrir hraðakstur Sektarreiknir fyrir ölvunarakstur
Sektarreiknir fyrir akstur undir áhrifum ávana- eða fíkniefna



