Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Eyðublöð og umsóknir

Leiðbeiningar fyrir færslu eigendaskipta á vef Umferðarstofu og staðfestingar í netbönkum Íslandsbanka og Arion banka

Í gegnum sjálfsafgreiðsluvef Umferðarstofu er hægt að skrá eigendaskipti að ökutækjum á vefnum. Í þessu skjali er að finna leiðbeiningar á ferlinu, en einnig koma fram leiðbeiningar í ferlinu sjálfu.

Til að skrá eigendaskipti á vefnum þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði

  • Allir aðilar að eigendaskiptunum þurfa að vera samþykkir eigendaskiptunum og tilbúnir að staðfesta þau í Netbanka. Þetta á við um seljenda, meðeiganda seljanda, kaupanda og meðeiganda kaupanda, ásamt umráðamanni kaupanda ef ætlunin er að skrá umráðamann.
  • Staðgreiða þarf öll gjöld sem tengjast skráningunni. Greiðsla þessi er hluti af staðfestingarferli í heimabanka og er sundurliðun fjárhæða birt áður en kemur til staðfestingar.
  • Einn aðili eigendaskiptanna greiðir allan kostnað og hann getur ekki staðfest eigendaskiptin fyrr en allir hinir hafa staðfest þau.
  • Allir aðilar að eigendaskiptunum verða að staðfesta eigendaskipti í Netbanka fyrir miðætti þann dag sem þau eru skráð á vef Umferðarstofu. Samþykki ekki allir aðilar eigendaskiptin innan tveggja vikna falla þau niður og þarf þá að hefja ferlið að nýju.
  • Ef tvenn eigendaskipti eru skráð á sömu bifreið sama dag, án þess að þau fyrri hafa verið samþykkt og skráð, þá verður fyrri skráningin ógild og aðeins hægt að samþykkja þau síðari.
  • Allar aðgerðir eru framkvæmdar á eigin ábyrgð. Geri notendur mistök sem þarf að leiðrétta má snúa sér til Umferðarstofu. Fyrir leiðréttingar er rukkað skv. gjaldskrá Umferðarstofu. Umferðarstofa endurgreiðir ekki gjöld sem greidd hafa verið við framkvæmd eigendaskipta.

Leiðbeiningar, skref fyrir skref

Skref 1 af 4

  • Fyllið út í alla reiti eins og beðið er um
  • Fastanúmer má finna í skráningarskirteini ökutækisins og á skráningarmerki þess nema um sérstakt skráningarmerki sé að ræða.
  • Í dálkinn "kennitala seljanda" skal skrá kennitölu eiganda eða meðeiganda ökutækisins. Nóg er að skrá einn aðila þótt eigendur séu fleiri.
  • Undir kennitölu kaupanda skal merkja við hvort skrá eigi meðeiganda eða umráðamann.
  • Í tryggingareitnum skal velja tryggingarfélag kaupanda. Ef ökutækið er tengitæki eða eftirvagn skal velja viðeigandi reit, en slík tæki eru ekki tryggingaskyld.

Skref 2 af 4

  • Upp kemur listi yfir þau gjöld sem greiða þarf í netbanka til að eigendaskiptin gangi í gegn.
  • Undir "veljið greiðanda" skal velja hvaða aðili að eigendaskiptunum skal greiða öll gjöld sem tengjast eigendaskiptunum skv. sundurliðunardálknum að ofan. Sá aðili sem valinn er verður jafnframt að vera seinasti aðilinn sem samþykkir eigendaskiptin í netbanka. Greiðsla mun eiga sér stað með millifærslu af bankareikningi greiðanda samhliða staðfestingu í netbanka.
  • Skrá skal netföng allra aðila (kaupanda og seljanda) en tilkynningar um staðfestingar og endanlega skráningu eigendaskipta verða sendar á uppgefin netföng.

Skref 3 af 4

  • Farið vandlega yfir þær upplýsingar sem fram koma. Ef allt er rétt, smellið á "Staðfesta". Smellið á "Til baka" ef gera þarf breytingar.
  • Ekki þarf að gera fleira á vef Umferðarstofu. Leiðbeiningar hér fyrir neðan gilda um aðgerðir í Netbönkum og þurfa allir aðilar að eigendaskiptunum að framkvæma það sem þar er lýst. Athugið að allir aðilar eigendaskiptanna (kaupandi og seljandi) þurfa að fara inn í sinn netbanka og staðfesta eigendaskiptin. Sá aðili sem valinn var greiðandi getur ekki samþykkt eigendaskiptin fyrr en allir aðrir hafa samþykkt þau.

Netbanki Íslandsbanka

  • Farið inn á heimasíðu Íslandsbanka www.isb.is og skráið ykkur inn í netbankann með hefðbundnum hætti.
  • Þegar innskráningu í netbanka er lokið er næsta skref að kalla fram allar skráningar sem eru ósamþykktar hjá Umferðarstofu. Smellið á "Yfirlit", svo á "Rafrænar samþykktir" og að lokum "Umferðarstofa". Þá opnast síða sem býður upp á yfirlit yfir rafræn eyðublöð frá Umferðarstofu. Til að fá eyðublöðin á skjáinn þarf að smella á sækja.
  • Nú birtist listi yfir öll útistandandi mál hjá Umferðarstofu. Í flestum tilfellum er hér aðeins um eina færslu að ræða. Veljið viðeigandi mál og smellið á táknmyndina lengst til hægri til að halda áfram.
  • Nú er á skjánum yfirlit yfir það mál sem liggur fyrir að samþykkja. Til að samþykkja eigendaskiptin þarf að skrá inn notandanafn og lykilorð og smella á staðfesta. Einnig er hægt að hafna eigendaskiptum og er þá smellt á "Hafna". Athugið að áður en greiðandi getur samþykkt þurfa aðrir aðilar að eigendaskiptunum að vera búnir að samþykkja.
  • Eftir að eigendaskipti hafa verið samþykkt birtist rammi þar sem greiðandi skal velja af hvaða reikningi kostnaðurinn skal skuldfærast. Þar þarf að slá inn öryggisnúmer og smella á staðfesta.
  • Eigendaskiptin hafa nú farið í gegn og tilkynning þess efnist verður send á uppgefin netföng því til staðfestingar. Athugið að slík staðfesting getur tekið einhvern tíma. Skráningarskírteini verður sent nýjum eiganda (umráðamanni) með pósti.

Netbanki Arion banka

  • Farið inn á heimasíðu Arion Banka www.arionbanki.is og skráið ykkur inn í netbankann með hefðbundnum hætti.
  • Þegar innskráningu í netbanka er lokið er næsta skref að kalla fram allar skráningar sem eru ósamþykktar hjá Umferðarstofu. Smellið á "Umsóknir" og svo "Umferðarstofa" en þá birtist listi yfir öll útistandandi mál hjá Umferðarstofu. Í flestum tilfellum er hér aðeins um eina færslu að ræða.
  • Í málinu undir "Aðgerðir" eru tvær táknmyndir en með því að smella á þær er hægt að samþykkja eða hafna viðkomandi máli. Ef smellt er á myndina sem táknar að samþykkja þá opnast síða þar sem málið er endanlega samþykkt eða því hafnað. Athugið að áður en greiðandi getur samþykkt þurfa aðrir aðilar að eigendaskiptunum að vera búnir að samþykkja.
  • Eftir að eigendaskiptin hafa verið samþykkt og um greiðanda eigendaskiptanna er að ræða þá birtist rammi þar sem greiðandi skal velja af hvaða reikningi kostnaðurinn skal skuldfærast. Þar þarf að slá inn öryggisnúmer og smella á staðfesta.
  • Eigendaskiptin hafa nú farið í gegn og tilkynning þess efnist verður send á uppgefin netföng því til staðfestingar. Athugið að slík staðfesting getur tekið einhvern tíma. Skráningarskírteini verður sent nýjum eiganda (umráðamanni) með pósti.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++