Upplýsingatorg
| Útg.nr: | 1 |
| Útg.dags: | 13.02.2003 |
2. Eigendaskráning
2.6.5 Eigendaskipti við gjaldþrot og nauðungarsölu
Gjaldþrot: Við sölu á ökutækjum þrotabús undirritar skiptastjóri eigendaskiptatilkynningu fyrir hönd búsins. Tilkynningu skal fylgja skipunarbréf skiptastjóra (endurrit úrskurðar héraðsdóms). Upplýsingar um skiptastjóra fást hjá héraðsdómi í því umdæmi sem viðkomandi er búsettur í.
Nauðungarsala: Heimilt er að færa eigendaskipti vegna nauðungarsölu eftir lista frá sýslumönnum. Ef í ljós kemur við innfærslu eigendaskipta að annar eigandi er skráður í ökutækjaskrá en sá sem er talinn eigandi samkvæmt listanum skal hafa samband við sýslumann og ganga úr skugga um að fastanúmer sé rétt tilgreint á lista. Ef fastanúmer er sannarlega rétt á lista skal skrá eigendaskipti þrátt fyrir framangreint misræmi. Ef ökutæki ber breytingalás í ökutækjaskrá skal aflétta lásnum og skrá eigendaskiptin. Tilkynna skal umsjónaaðila breytingalása um ástæðu þess að breytingalás hefur verið aflétt.



