Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

Útg.nr: 1
Útg.dags: 13.02.2003

3. Skráningarmerki

3.2 Móttaka skráningarmerkja


Samanburður:
Að lokinni framleiðslu skráningarmerkja eru þau send til afgreiðslu Umferðarstofu. Hverri sendingu fylgir hóplisti sem bera skal saman við innihald sendingarinnar.

Gallar í sendingu: Ef sending er gölluð verður starfsfólk strax að bregðast við. Ef skráningarmerki vantar er haft samband við Litla-Hraun. Ef mikið liggur á merkjum skal panta flýtuplötur á kostnað þess er á sök á mistökum. Ef of mörg skráningarmerki berast eru umframmerkjum hent. Ef skráningarmerki eru gölluð eða röng eru þau endursend og ný merki pöntuð á kostnað þess sem gerði mistökin. Starfsmenn afgreiðslu skulu afhenda starfsmanni í bókhaldsdeild lista yfir frávik í sendingu. Tilgreina skal hver á sök á mistökum enda ber Umferðarstofu aðeins ábyrgð á mistökum sem starfsfólk hennar gerir.

Skráning á móttöku: Að lokinni skoðun sendingar eru skráningarmerki skráð móttekin í ökutækjaskrá.

Pökkunarlisti: Að lokinni skráningu á móttöku er gerður pökkunarlisti og skráist þá rétt staðsetning skráningarmerkja í plötugeymslu ökutækjaskrá.

Raðað í hillur: Að lokinni skráningu á móttöku er skráningarmerkjum raðað í geymslur. Skráningarmerki umboðs og eru sett í hillu viðkomandi umboðs og skráningarmerki skoðunarstofa eru sett í hillu viðkomandi skoðunarfyrirtækis.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++