Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

Útg.nr: 3
Útg.dags: 02.03.2005

2. Eigendaskráning

2.5 Umráðamaður


Tilkynning um umráðamann: Ef óskað er skráningar umráðamanns skal framvísa tilkynningu um umráðamann (US.142). Skráður eigandi og umráðamaður skulu undirrita tilkynninguna og einn vitundarvott þarf að undirskriftum. [Ef aðrir en ofangreindir aðilar undirrita beiðni samkvæmt umboði skal umboð fylgja með.]

Niðurfelling á umráðamanni: Ef óskað er niðurfellingar á umráðamanni skal framvísa tilkynningu um umráðamann (US.142). Skráður eigandi skal undirrita tilkynninguna og einn vitundarvott þarf að undirskrift hans. [Ef ritað er undir fyrir hans hönd skal vottað umboð að fylgja með.]

Umráðamaður við forskráningu: Innflytjandi er skráður sem umráðamaður viðkomandi ökutækis við forskráningu.

Umráðamannaskipti á forskrá: Heimilt er að skrá breytingu á umráðamanni ökutækis sem er á forskrá. Framvísa skal tilkynningu um umráðamann (US.142) og skulu fyrri umráðamaður og nýr umráðamaður báðir undirrita tilkynninguna. [Ef ritað er undir fyrir þeirra hönd skal vottað umboð að fylgja með.] Einnig skal framvísa fyrri nýskráningarbeiðni sem gefin var út að lokinni forskráningu. Að lokinni breytingu umráðamanns skal prenta út nýja nýskráningarbeiðni.

Umráðamaður við nýskráningu: Ef óskað er skráningar umráðamanns við nýskráningu ökutækis skal tilgreina umráðamann á nýskráningarbeiðni.

Umráðamaður við eigendaskipti: Á eigendaskiptatilkynningu (US.140) er unnt að tilgreina umráðamann. Ekki þarf að greiða sérstaklega fyrir skráningu umráðamanns samhliða eigendaskiptum.

[Umboð: Í umboði skal koma fram efni umboðs, fastanúmer ökutækis, nafn og kennitala umboðsmanns, undirritun umbjóðanda og tveir vitundarvottar. Umbjóðandi, umboðsmaður og vitundarvottar skulu allir að vera orðnir 18 ára.]

Gjald: Fyrir skráningu og niðurfellingu umráðamanns skal innheimta gjald samkvæmt gjaldskrá Umferðarstofu. Við umráðamannaskipti á forskrá skal innheimta gjald fyrir skráningu og niðurfellingu á umráðamanni. Ekki þarf að greiða sérstaklega fyrir skráningu umráðamanns samhliða nýskráningu og eigendaskiptum.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++