Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

Útg.nr: 1
Útg.dags: 13.02.2003

3. Skráningarmerki

3.3 Framsending skráningarmerkja


Framsending til skoðunarstöðva:
Skráningarmerki sem á að afhenda á skoðunarstofu (vegna nýskráningar eða skipta á skráningarmerkjum) eru sett í hillu viðkomandi skoðunarfyrirtækis í afgreiðslu. Þegar skráningarmerki eru sett í hillu skoðunarfyrirtækis er þau skráð framsend á viðkomandi skoðunarstofu í ökutækjaskrá. Einnig geta skoðunarfyrirtæki sótt einstök skráningarmerki í afgreiðslu Umferðarstofu og eru þau þá einnig skráð framsend á viðkomandi skoðunarstofu.

Móttaka á skoðunarstofu: Þegar skoðunarstofan hefur móttekið merkin á starfsstöð sinni skal hún skrá móttöku í ökutækjaskrá.

Framsending og móttaka hjá umboði: Skráningarmerki nýrra gerðarviðurkenndra ökutækja sem á að afhenda hjá umboði við nýskráningu eru sett í hillu viðkomandi umboðs í afgreiðslu. Merkin eru skráð framsend á viðkomandi umboð í ökutækjaskrá.

Framsending og móttaka hjá Umferðarstofu: Ef skráningarmerki eru í geymslu hjá umboðsaðila en þess er óskað að þau verði afhent hjá Umferðarstofu skal óska eftir því að skráningarmerkin verði framsend til Umferðarstofu. Þegar merkin eru móttekin hjá Umferðarstofu skal skrá þau móttekin í ökutækjaskrá.

Staðsetning skilyrði afhendingar: Það er skilyrði þess að heimilt sé að afhenda skráningarmerki að merkin séu skráð staðsett hjá viðkomandi afhendingarstað. Þó er heimilt að afhenda merki á skoðunarstofu tiltekins skoðunarfyrirtækis ef þau hafa verið móttekin á einhverri af skoðunarstofum þess skoðunarfyrirtækis.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++