Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

5. Yfirlit breytinga

Gjaldfrjáls eigendaskipti: Kafli 2.1. uppfærður og eftirfarandi setning tekin út: "Heimilt er að samþykkja gjaldfrjáls eigendaskipti ef seljandi ökutækis er umboð með viðurkenndan fulltrúa, ökutækið var nýskráð á viðkomandi umboð og um er að ræða fyrstu eigendaskipti eftir nýskráningu." (06.02.2012)

Reynslumerki: Kafli 3.10.4. um reynslumerki endurskoðaður í heild sinni. Breytingar frá fyrri reglum lúta m.a. að afleiðingum misnotkunar á reynslumerkjum, heimilli notkun reynslumerkja og blaðamannalánum (01.01.2012).

Erlend tjónagögn: Ef óskað er skráningar á ökutæki (öðru en bifreið) á grundvelli erlendra skráningargagna sem bera það með sér að ökutækið hafi verið skráð tjónaskráningu í fyrra skráningarlandi skal skrá athugasemdina "Erlend tjónagögn" í athugasemdareit skráningarskírteinis. Athugasemdin hefur ekki áhrif á skráningarferli ökutækisins og er aðeins ætluð til upplýsinga um feril ökutækisins. Ekki er hægt að afmá athugasemdina. Tekið út úr kafla 1.9.12. (12.04.2011).

Erlend skráningargögn um tjónabifreið:
Ef erlend skráningargögn bera það með sér að bifreið sé tjónabifreið skal [skrá athugasemdina "Tjónabifreið II"]1)við forskráningu. Þetta á t.d. við ef skráningargögn eru af gerðinni: "Scrap Certificate", "Certificate of Destruction", "Salvage Certificate of Title". [Ef erlent skráningarskírteini ber það með sér að bifreið sé viðgerð tjónabifreið, t.d. athugasemd um "Previously salvaged" eða "Rebuilt salvage", skal skrá athugasemdina "Viðgerð tjónabifreið" við forskráningu. Athugasemdin kemur fram í skráningarskírteini bifreiðar og í skráningarferli.] Tekið úr kafla 1.9.9.1 (04.11.2010).

Tjón-útlitsskaði og Tjón-vatnsskemmd: Ekki er lengur skráð athugasemd um útlitsskaða á ökutæki. Eldri skráningar (skráðar fyrir 1. júní 1999) hafa verið felldar úr ökutækjaskrá en unnt er að sjá þær í skráningarferli bifreiðar. Ef upplýsingar um vatnstjón bifreiðar koma fram í erlendum skráningargögnum bifreiðar skal skrá athugasemd um tjónið ("Tjón-vatnsskemmd"). Tekið úr kafla 1.9.9.1 (04.11.2010).

Varnarliðsmannaökutæki - breyting: Allir kaflar (1.8.2, 2.6.1 og 3.10.1) er snertu ökutæki í eigu varnarliðsmanna og ökutæki í eigu Varnarliðsins teknir út úr skráningarreglunum. (05.01.2010)

Niðurrifslás - viðbót: Við breytingalása bætist við Niðurrifslás sem eingöngu er ætlaður ökutækjum í eigu tryggingafélaga, sjá kafla 1.9.5 Breytingalás á ökutæki (08.10.2009) 

Fulltrúaskoðun/skattflokkur - leiðrétting: Ranglega skráð að viðmið sé 4000 kg, í dag er miðað við 10.000 kg, sjá kafla 1.10.1 Fulltrúaskoðun. (10.09.2008)

Afhending fornmerkja - breyting: Afhendingarferli fornmerkja breytt og öll fornmerki þarf nú að senda Umferðarstofu til samþykktar áður en þau eru áframsend til skoðunarstöðva. Heimild skoðunarstöðva til að samþykkja fornmerki tekin út. (01.07.2008)

Fulltrúaskoðun - viðbót:  Við skilyrði fulltrúaréttinda bættist við það ákvæði að standast þyrfti skriflegt próf til fulltrúaréttinda að námskeiði loknu með einkunnina 7.0 að lágmarki , sjá kafla 1.10.1 Fulltrúaskoðun. (11.01.2008)

Afskráning - breyting: Skilyrði þess efnis að ökutæki sem ætti að afskrá týnt þyrfti að vera skráð eftirlýst af lögreglu í 8 vikur, var tekið út og því breytt þannig að þar til bær aðili þyrfti að staðfesta það týnt (Kafli 1.4 Afskráning). (10.01.2008)

Ökutæki erlendis - breyting: Vegagerðin gefur leyfi til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, í stað samgönguráðuneytis áður. Sjá kafla 1.8.6 Ökutæki erlendis. (03.01.2008)

Breytingaskráning - viðbót: Reglum um skráningu tengibúnaðar var bætt við kafla 1.6 Breytingaskráning. (24.09.2007)

Skráningarmerki - viðbót: Við kafla 3.7 Stærð og gerð, var bætt við lýsingu á útliti undanþágumerkja. (19.09.2007)

Breytingalás - viðbót: Frekari upplýsingum úr skráningarreglum var bætt við texta við breytingarlás 8 - Námuökutæki með kvöð (kafli 1.9.5). (19.09.2007)

Skráningarmerki - breyting: Kaflar 3.4 Afhending, 3.7 Stærð og gerð, 3.10.3 Einkamerki og 3.10.6 Fornmerki voru aðlagaðir að breytingum á gerð skráningarmerkja. Hingað til hafa númerin verið þannig að fyrst koma tveir bókstafir og síðan þrír tölustafir. Með því að bæta bókstöfum við tölustafina í þriðja dálk númersins er hægt að stækka mögulegan númerafjölda upp í rúmar tvær milljónir númera. Hingað til hafa fastanúmer öll verið á forminu "AB123" en geta nú einnig verið "ABC23". (10.09.2007)

Einkamerki - viðbót: Bætt hefur verið inn ákvæði í umferðarlögum þess efnis að skráður eigandi ökutækis skal fram að 65 ára aldri greiða gjald vegna endurnýjunar á rétti til einkamerkis (kafli 3.10.3). (23.08.2007)

Breytingaskráning - breyting: Bætt hefur verið við kafla 1.6 Ökutækisflokkur. Þegar ökutæki er breytt á milli ökutækisflokka skal framvísa gögnum er staðfesta að ökutæki uppfylli kröfur hins nýja flokks á þeim degi er ökutæki er fært til breytingaskoðunar, þ.m.t. gögnum um greiðslu opinberra gjalda.

Fulltrúaskoðun - breyting: Kafla 1.10.1 Fulltrúaskoðun  hefur verið breytt og þarf viðvörunarþríhyrningur að uppfylla kröfur sem gerðar eru í reglugerð um gerð og búnað ökutækja.  Einnig þurfa hjól bifhjóls að vera búin hjólhlífum.

Varnarliðsmannaökutæki - breyting: Kafla 2.6.1 Eigendaskipti varnarliðsmannaökutækja hefur verið breytt og getur nú tollstjóraembættið gefið heimildir til eigendaskipta á varnarliðsmannaökutækjum.

Skráningarmerki - breyting: Kafla
3.7 Stærð og gerð hefur verið breytt og gefið út upplýsingaskjal með stærðum og gerðum skráningarmerkja US.336

Forskráningar - breyting: Kafla um forskráningar hefur verið skipt niður í Ferli, Fylgigögn, Skilgreiningar og Verksmiðjunúmer

Forskráningar - breyting: Ökutæki sem koma til landsins með Norrænu eða öðrum sambærilegum leiðum geta fengið undantekningu frá kröfum um frumrit. Undanþága sem þessi er þó háð samstarfi sýslumanns hvers umdæmis fyrir sig. Sjá kafla 1.2 Forskráningar. (18.05.2005)

Athugasemdir - nýr kafli: Kominn er nýr kafli þar sem fram kom allar athugasemdir sem geta birst í athugasemdareit í ökutækjaskrá.  Sjá kafla
1.9.12 Athugasemdir. (18.05.2005)

Aðrar skoðanir - nýr kafli: Kominn er nýr kafli um aðrar tegundir skoðana. Sjá kafla 1.10.4 Niðurstaða skoðunar. Í þessum kafla er að finna ýmsar aðrar tegundir skoðana, t.a.m. leyfisskoðanir hópbifreiða. (18.05.2005)

Samanburðarskoðun - nýr kafli: Kominn er nýr kafli um samanburðarskoðun. Sjá kafla 1.10.3 Samanburðarskoðun. (18.05.2005)

Skráningarskoðun - nýr kafli: Kominn er nýr kafli um skráningarskoðun. Sjá kafla 1.10.2 Skoðunarstofur. (18.05.2005)

Fulltrúaskoðun - breyting: Fulltrúi þarf að athuga ólöglegan gasbúnað ef það er athugasemd þess efnis í ökutækjaskrá. Sjá kafla 1.10.1 Fulltrúaskoðun. (18.05.2005)

Innlögð skráningarmerki - breyting: Heimilt er að skrá ökutæki úr umferð ef lögregla eða tryggingafélag skilar inn aðeins einni plötu. (20.04.2005)

Tjónabifreiðar - breyting: Þegar bifreiðar eru skráðar úr umferð skal ástæða skráningar vera "Úr umferð v/tjóns" en ekki "Vegna vanbúnaðar" eins og áður var. (20.04.2005)

Skráning í umferð - breyting: Skilyrði fyrir því að skrá ökutæki í umferð eftir að skráningarmerki hafa verið klippt af lögreglu hafa verið áréttuð og eru nú skýrari. (20.04.2005)

Aukamerki - breyting: Ekki skal vera upplyftur flötur fyrir skoðunarmiða á aukamerkjum. (20.04.2005)

Úrvinnslugjald - breyting: Breyting hefur orðið á reglum varðandi úrvinnslugjald. Breytingarnar felast í því að nú er hægt að greiða úrvinnslugjald vegna ökutækja skráðum hér á landi eftir 1. janúar 1980 og gjaldið hefur verið hækkað í 15.000 kr. Einnig er nú hægt að greiða úrvinnslugjald til meðeigenda en ekki bara til aðaleigenda eins og áður var.

Sendiráðsmerki - breyting: Kafla 1.8.3 Sendiráðsmerki hefur verið breytt lítillega hvað varðar kröfur um fylgigögn með forskráningu.

Verksmiðjunúmer - breyting: Kafla 1.9.13 Verksmiðjunúmer hefur verið breytt og hann bættur með upplýsingum um úthlutun verksmiðjunúmera á Íslandi.
 
Breytingalás - breyting: Bætt hefur verið við kafla
1.9.5 Breytingalás. Nýjum breytingalás hefur verið bætt inn "Einkamerkjalás".

Niðurstaða skoðunar - breyting: Kafla 1.10.4 hefur verið breytt töluvert og heitir nú Niðurstaða skoðunar. Í kaflanum er nú að finna upplýsingar um mögulegar niðurstöður skoðana ásamt kóðum mismunandi skoðana.
 
Skoðunarstofur - breyting: Kafla
1.10.2 hefur verið breytt og heitir nú Skoðunarstofur. Í þessum kafla er að finna upplýsingar um hvaða skoðanir fara fram á skoðunarstofum ásamt upplýsingum um leyfisskoðanir hópbifreiða o.fl.
 
Einkamerki - breyting: Kafla
3.10.3 Einkamerki hefur verið breytt. Í samræmi við breytt vinnuferli varðandi endurnýjun einkamerkja hafa reglur um einkamerki verið uppfærðar og auknum upplýsingum um ferlið varðandi endurnýjun bætt við.

Tjónaskráningar - breyting: Reglum um endurmat tjónabifreiða hefur verið breytt. Aðeins þær bifreiðar sem eru tilkynntar sem tjónabifreiðar af lögreglu eða tollstjóra hafa nú kost á endurmati. Ökutæki sem flutt eru til landsins sem tjónabifreiðar geta ekki farið í endurmat eins og áður var og fengið tjónaskráningu afmáða og ekki er hægt að fara í endurmat ef tjón er tilkynnt af tryggingafélagi (kaflar 1.9.9.1, 1.9.9.2 og 1.9.9.3). (31.05.2005)

Umboð undirskriftar - breyting: Reglur um umboð fyrir undirskrift hafa verið settar skýrar niður í köflum um nýskráningar, afskráningar, skráningar úr umferð, meðeigendur og umráðamenn.

Pöntun skráningarmerkja - breyting: Reglur um pöntun skráningarmerkja hafa verið uppfærðar og eru nú skýrari hvað varðar flýtipantanir.

Fornmerki - breyting: Áréttað hefur verið að ekki er heimilt að hafa punkta eða önnur tákn í skráningarmerkjum.

Eigendaskipti skv. afsali - breyting: Þjónustuver Umferðarstofu sér nú um eigendaskipti skv. afsali líkt og önnur form eigendaskipta.

Reynslumerki - breyting: Ekki er heimilt að setja reynslumerki á tjónabifreiðar.

Aldur ökutækja - breyting: Reglur um aldursviðmiðun ökutækja frá Bandaríkjunum og Kanada eru betur skýrðar.

Einkamerki - breyting: Ekki má hafa áletrun sem er 2 bókstafir og 3 tölustafir (eins og fastanúmer). Ekki er heimilt að hafa áletrun einkamerkis sem er samhljóða öðru skráningarmerki í notkun, hvort sem um er að ræða einkamerki, fornmerki eða eldra skráningarmerki. (01.02.2005)

Fornmerki - breyting: Ekki má hafa áletrun sem er 2 bókstafir og 3 tölustafir (eins og fastanúmer). Ekki er heimilt að taka upp áletrun á fornmerki sem er samhljóða áletrun á öðru skráningarmerki í notkun, hvort sem það er fornmerki, einkamerki eða eldri tegund skráningarmerkja. (01.02.2005)

Úrvinnslugjald - breyting: Hægt er að greiða úrvinnslugjald til ökutækja skráðum hér á landi eftir 1. janúar 1980 og gjaldið hefur verið hækkað í 15.000 kr. Einnig er nú hægt að greiða úrvinnslugjald til meðeigenda en ekki bara til aðaleigenda eins og áður var. (26.01.2005)

Forskráning - breyting: Viðamiklar breytingar voru gerðar á reglum um forskráningu. Breytingarnar náðu helst til skilyrða um fylgigögn við forskráningu. (01.01.2005)


Breyting á notkunarflokki - fornbifreið: Fornbifreið er ekki ætluð til almennrar notkunar og telst vera safngripur og er orðin að minnsta kosti 25 ára gömul. (29.12.2004)

Nýr notkunarflokkur - fornbifhjól: Fornbifhjól er ekki ætlað til almennrar notkunar og telst vera safngripur og er orðið að minnsta kosti 25 ára gamalt. (29.12.2004)

Afskráning til úrvinnslu - slökkvilið: Heimilt er að afskrá ökutæki til úrvinnslu ef afskráningarbeiðni fylgir yfirlýsing frá viðurkenndu slökkviliði þar sem því er lýst yfir að ökutæki verði notað við æfingar og flaki skilað til úrvinnslustöðvar að lokinni æfingu. (16.10.2004)

Endurnýjun einkamerkja: Við endurnýjun einkamerkja er réttur framlengdur um átta ár og endurnýjun miðast við lokadagsetningu fyrra réttindatímabils. (01.09.2004)

Beiðni til Umferðarstofu:
Eigandi eða umráðamaður skal framvísa beiðni
(US.159) um skráningu úr umferð og leggja skráningarmerki ökutækis inn til geymslu ef ekki eru afhentir miðar sem letrað er á "Notkun bönnuð" til að líma yfir skoðunarmiða ökutækis. (20.08.2004)

Skráning úr umferð: Dagsetning skráningar úr umferð miðast við þann dag er Umferðarstofu berst beiðni um skráningu úr umferð og fær skráningarmerki ökutækis til geymslu eða þegar tilkynning um móttöku beiðni og merkja berst frá skoðunarstofu. Óheimilt er að skrá ökutæki úr umferð aftur í tímann nema framvísað sé staðfestri kvittun eða sambærilegri sönnun á móttöku merkja á umræddum degi hjá lögmætum geymsluaðila skráningarmerkja. (20.08.2004)

Skráning í umferð: Aðeins skráður eigandi, meðeigandi eða umráðamaður ökutækis geta skráð ökutæki í umferð (US.160) og þar af leiðandi tekið út skráningarmerki sem hafa verið í innlögn. Ef aðrir vilja taka út skráningarmerki skal framvísa umboði frá eiganda, meðeiganda eða umráðamanni og skal umboðið vera vottað af tveimur vitundarvottum (US.161). Þegar tilkynning berst frá skoðunarstofu um úttekt skráningarmerkja skal tilgreina kennitölu úttektaraðila. Ef úttektaraðili er ekki eigandi, meðeigandi eða umráðamaður skal skoðunarstofa staðfesta að framvísað hafi verið umboði til úttektaraðila. (20.08.2004)

Gerð skráningarmerkja: Skráningarmerki skulu vera úr 1,0-1,5 mm þykku áli. Grunnur skal vera með endurskini. Stafir, bandstrik (þar sem við á), rönd á brúnum og flötur fyrir skoðunarmiða þeirra ökutækja sem færa skal til almennrar skoðunar skulu vera upplyftir. Skráningarmerki af gerð A, B og D skulu hafa upplyftan flöt fyrir [áprentað þjóðarmerki], þó ekki vsk-merki sem þess í stað skulu hafa upplyftan tígullaga flöt. [Ökutæki sem voru skráð fyrir 1. apríl 2004 mega vera merkt með skráningarmerkjum án áprentaðs þjóðarmerkis, með því skilyrði að setja skal límmiða með áprentuðu þjóðarmerki á upplyfta flötinn framan við bókstafi á almennu skráningarmerki af gerð A, B og D.] (17.08.2004)

[Skoðunarmiðar: Límmiði á upplyftan flöt á skráningarmerkjum eða í framrúðu. Skoðunarmiði skal verður að vera úr efni sem ekki er hægt að fjarlægja af óskemmt. Stærð miðanna skal vera 38 x 68 mm. Litaður grunnur í nokkrum litaafbrigðum sem hver er notaður á nokkurra ára fresti. Á efri hluta miðans skulu vera seinni tveir tölustafir þess ártals er miðinn gildir og á neðri hluta miðans er ártalið í heild sinni. Hæð tölustafa á efri hlutanum skal vera 27 mm á miðjum fletinum sem er 49 mm á hæð en hæð tölustafa á neðri hlutanum, sem er 18 mm á hæð, skal vera 8 mm.] (17.08.2004)

[Þjóðarmerki: Áprentað merki eða límmiði á upplyftan flöt framan við bókstafi á almennu skráningarmerki af gerð A, B og D. Hvítur grunnur, 50 x 95 mm, með íslenska fánann, 30 x 42 mm, á efri hluta merkisins. Stafirnir IS, svartir að lit, 27 mm á hæð á neðri hluta.] (17.08.2004)

[Fornmerki: Fornmerki skulu vera í samræmi við þær reglur er giltu um eldri gerðir skráningarmerkja.] (17.08.2004)

[Varnarliðsmerki: Grunnur varnarliðsmerkja skal vera hvítur með bláum ramma og bláu letri, upphleyptur tígull vinstra megin við númer þar sem komið skal fyrir sérstöku skjaldmerki Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.] (17.08.2004)

Önnur merki á skráningarmerki: [Með öllu er óheimilt að líma önnur merki en skoðunarmiða og þjóðarmerki á skráningarmerki.] (17.08.2004)

Neyðarakstur: Heimilt er að skrá til neyðaraksturs ökutæki í eigu opinberra slökkviliða. Ef ökutæki slökkvliðs er skráð í eigu sveitarfélags skal framvísa yfirlýsingu frá sveitarfélaginu um að um ökutæki slökkviliðs sé að ræða. (16.08.2004)

Skráningarskírteini: Skráningarskírteini skal gefið út strax að lokinni skráningu eigendaskipta. Ef eigendaskipti eru skráð í afgreiðslu og kaupandi annast tilkynninguna skal afhenda honum skírteinið strax að lokinni skráningu. Í öðrum tilvikum skal skírteinið sent eigenda/umráðamanni samdægurs. (15.06.2004)
 
Lögveð vegna vörugjalds (9): Ef ökutæki er með breytingalás 9 er ekki heimilt að skrá eigendaskipti, breytingu á umráðamanni eða breytingu á notkunarflokki. Þó er heimilt að breyta notkunarflokki ökutækis fyrir og við nýskráningu, þótt á ökutæki hvíli breytingalás 9. (28.01.2004)
 

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++