Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

Útg.nr: 1
Útg.dags: 13.02.2003

2. Eigendaskráning

2.3 Höfnun tilkynninga


Höfnun eftir tvo mánuði í bið:
Vikulega er farið yfir þau eigendaskipti sem eru í bið og tilkynningum sem hafa verið í biðskrá í meira en tvo mánuði hafnað. Báðum aðilum er sent bréf þar sem fram kemur að skráningu eigendaskipta hafi verið hafnað. Í bréfinu er tilgreind ástæða höfnunar sbr. gölluð eigendaskipti.

Vistun á höfnuðum tilkynningum: Tilkynning er tekin úr bið og sett í þar til gerða möppu. Gjald fyrir eigendaskipti er ekki endurgreitt við höfnun.

Skráning eftir höfnun: Ef aðili bætir úr annmarka á eigendaskiptum eftir höfnun og óskar eftir skráningu eigendaskipta skulu þau skráð.

Skráning á beiðanda: Tilgreina skal nafn þess er óskar eftir skráningu eftir höfnun aftan á eigendaskiptatilkynningu.

Samþykkja gölluð eigendaskipti: Þegar höfnuð eigendaskipti eru skráð er það gert með því að fara í liðinn "samþykkja gölluð eigendaskipti".

Ekkert viðbótargjald: Ef sannarlega er um að ræða eigendaskipti milli sömu aðila og unnt er að fletta upp höfnuninni skal ekki krefja um greiðslu fyrir skráningu eigendaskiptanna.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++