Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

 

 

Upplýsingar

Hvers konar leikur er þetta?

Þessi leikur er um lítinn innipúka sem er búinn að týna vinum sínum Matthildi og Dodda. Þau eru einhversstaðar í bænum og þú verður að hjálpa honum að finna þau því hann kann ekki umferðarreglurnar. Þú notar yfirlitskort og stækkunargler til að átta þig á því hvert Matthildur og Doddi hafa farið.

Þú lendir í því að leysa margar þrautir sem flestar tengjast umferðinni og það er líka gaman að leyfa innipúkanum að tína upp dótið sem verður á leið hans því honum finnst ekkert betra en að fá sér epli, ís, köku, snúð eða rabbabara og svo hefur hann gaman af að safna allskonar drasli.

Hvað merkja stjörnurnar neðst?

Hver stjarna merkir þraut. Þegar þú hefur komist klakklaust á milli staða og leyst þá þraut sem fylgir hverjum áfangastað blæs táknið út. Það merkir að þú hefur leyst þrautina.

Hvernig eru þrautirnar?

  • Í fyrstu þrautinni þarftu að finna gangbrautina og leysa gangbrautarþrautina.
  • Í annarri þrautinni þarftu að leysa margar litlar þrautir á leið til ljósmyndarans þar sem þú leysir ljósmyndaþrautina sem felst í því að smella á myndirnar, skoða þær og setja þær annaðhvort í myndaalbúmið eða ruslafötuna.
  • Í þriðju þrautinni þarftu að nota gönguljós og gæta þín á garðúðurum og hundum sem pissa til þess að komast á hjólaverkstæðið þar sem þú leysir hjólaþrautina.
  • Í fjórðu þrautinni þarftu að komast klakklaust eftir hjólastígnum upp á Stórugötu, setja hluti á réttan stað til að leysa þrautina sem lögð er fyrir þig þar.
  • Í fimmtu þraut verður þú m.a. að gæta þín á bílum sem bakka til að komast í kvikmyndahúsið. Þar hittir þú snjókallinn í vetrarþrautinni. Þar er gaman að renna sér og eins gott að velja öruggar brekkur. Ef þú gerir það kemst þú að skíðaskálanum og leysir minnisþraut sem tengist vetrinum og umferðinni.

Þegar þú hefur hjálpað innipúkanum að leysa allar þrautirnar finnur hann vini sína.

Hvað gerir ormurinn?

Ef þú lendir í vandræðum getur þú smellt á orminn og hann hjálpar þér.

Til hvers er kortið neðst á skjánum?

Þú getur notað kortið neðst á skjánum til að ferðast um þá staði sem þú hefur komið á áður. Ef þú smellir á punktana ferðu í ferðalögin og þrautirnar sem eru á milli áfangastaða. Ef þú smellir á stjörnurnar ferðu á áfangastaðina og í þær þrautir sem þeir bjóða upp á.

Hvað á að gera ef vandamál koma upp?

Þú sendir tölvupóst til Umferðarstofu. us@us.is

 

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++