Upplýsingatorg
Tæknilega séð er stafræna ökuritakerfið samsett úr mörgum mismunandi hlutum. Hér á eftir verður lýst hvernig aðalhlutirnir í kerfinu starfa, þ.e. gjörvakortin og sjálft bíltækið.
Margs konar upplýsingar eru vistaðar á hinu einstaklingsbundna ökumannskorti og í sjálfum ökuritanum í ökutækinu. Ökuritinn safnar upplýsingum og vistar þær með hjálp hreyfiskynjara í ökutækinu.
Hver gerð af korti hefur aðgang að mismunandi upplýsingum í ökuritakerfinu. Á ökumannskortið vistast upplýsingar sem varða ökumanninn. Lögreglan og Vegagerðin geta síðan skoðað ökumannskortið í ökuritanum með því að nota sérstakt eftirlitskort.
Upplýsingar og gögn má svo yfirfæra til flutningafyrirtækisins með notkun fyrirtækiskortsins og sérstakra lesara.



