Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

Bill og evropa m txt

Tilgangur þess að taka í notkun rafræna ökurita er að einfalda mælingu á aksturs- og hvíldartíma og hindra  misnotkun. Þetta eykur umferðaröryggi, bætir vinnuaðstæður ökumanna og gerir samkeppni flutningafyrirtækja virkari og sanngjarnari.

 

Þau ökutæki, sem reglur EES um aksturs- og hvíldartíma ná til skulu hafa fasta ökurita. Ökuritinn skráir upplýsingar um aksturinn, svo sem hraða og aksturs- og hvíldartíma. Með aðstoð ökuritans sjá eftirlitsmenn Vegagerðarinnar til þess að farið sé að settum reglum.

Kerfi þetta var innleitt á Íslandi árið 2006 og voru fyrstu kortin framleidd í september það ár.  Öll ríki Evrópusambandsins hafa tekið kerfið upp og áætlað er að árið 2010 verði þetta kerfi einnig komið á í öllum löndum sem hafa undirritað AETR-samkomulagið, þ.e. þau lönd sem hafa skuldbundið sig til að hlíta reglum um aksturs- og hvíldartíma í öllum alþjóðlegum flutningum.

Nýja kerfið dregur úr vandamálum vegna svindls sem var viðvarandi í gamla pappaskífukerfinu.  Ekki er gerð krafa um að skipta um ökurita í þeim bílum sem þegar eru með skífuökurita og því munum við búa við tvöfalt kerfi í þó nokkur ár, þ.e. þar til búið er að skipta út öllum flotanum.

 

 

 



Yfirlit yfir þau lönd sem reglugerð um rafræna ökurita nær til:

 
 EB EFTA AETR
Austurríki Ísland Albanía
Belgía Licthenstein Andorra
Bretland Noregur Armenía
Búlgaría   Aserbaídsjan
Danmörk   Bosnía-Hersegóvína
Eistland   Hvíta Rússland
Finnland   Kasakstan
Frakkland   Króatía
Grikkland   Makedónía
Holland   Moldavía
Írland   Mónakó
Ítalía   Rússland
Kýpur   San Marínó
Lettland   Serbía
Litháen   Svartfjallaland
Lúxemborg   Sviss
Malta   Túrkmenistan
Portúgal   Tyrkland
Pólland   Úkraína
Rúmenía   Úsbekistan
Slóvakía    
Slóvenía    
Spánn    
Svíþjóð    
Tékkland    
Ungverjaland    
Þýskaland    
 

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++